Allir stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi hafa kynnt sameiginlegar tillögur um breytingu á fjárlögum. Í tillögunum er lagt til að útgjöld ríkissjóðs verði aukin um rúma 16 milljarða króna á næsta ári. Munar þar mestu um hækkun á örorku- og ellilífeyri um 5,3 milljarða króna, hækkun barnabóta um 2,4 milljarða króna, aukin framlög vegna fæðingarorlofs um 1,7 milljarða króna og ýmis verkefni Landsspítalans. Stjórnarandstaðan vill fjármagna tillögurnar með hærri veiðigjöldum, arði af bönkum, orkuskatti á stóriðju og bættu skattaeftirliti. Þetta kom fram á sameiginlegum fréttamannafundi sem Píratar, Vinstri græn, Samfylking og Björt framtíð héldu í Iðnó í dag.
Í tilkynningu vegna þessa segir að tillögurnar sýni „að mögulegt er að leggja aðrar áherslur við stjórn landsins og nýta bætta afkomu ríkissjóðs á sanngjarnari hátt. Áhersla er á bætt kjör almennings og þeirra sem lægstar tekjur hafa, á heilbrigðisþjónustu, menningu og menntamál og á fjárfestingar í umhverfi og innviðum samfélagsins um allt land. Þannig verði unnið gegn ójöfnuði á Íslandi og tryggt að aukin hagsæld skiptist á réttlátan hátt."
Allar tillögurnar, sem eigi að fjármagna með auknum tekjum.
Þær eiga að nást inn, líkt og áður sagði, með hærri veiðigjöldum, arði af bönkum, orkuskatti á stóriðju og bættu skatteftirliti. „Þar fyrir utan má minna á að á yfirstandandi kjörtímabili hefur stjórnarmeirihlutinn tekið fjölmargar ákvarðanir um lækkun tekna sem nemur tugum milljarða. Þar má nefna lækkun veiðigjalds, afnám auðlegðarskatts, lækkun á tekjuskatti betur stæðra, afnám sykurskatts, auk þess að heykjast á alvöru gjaldtöku af ferðamönnum. Breytingar á þessum ákvörðunum í heild eða hluta myndu geta skapað gríðarlegt viðbótarsvigrúm í ríkisrekstrinum," segir í tilkynningunni.
Tillögur stjórnarandstöðunnar des 2015 |
|
Útgjöld |
mkr |
Landspítali viðhald |
1.400 |
Landspítali magnaukning |
1.040 |
Landspítali kjarasamningar |
400 |
Sjúkrahúsið á Akureyri |
100 |
Geðfatlaðir þjónusta, húsnæði |
33 |
Háskólar almennt |
400 |
Framhaldsskólar almennt |
400 |
Hækkun örorku og ellilífeyris |
5.305 |
Samgöngur nýframkvæmdir |
700 |
Viðhald vega |
700 |
Sóknaráætlun landshluta |
400 |
Fæðingarorlof hækkun |
1.700 |
Barnabætur |
2.400 |
Umboðsmaður Alþingis |
15 |
Fangelsismálastofnun |
80 |
Kynbundið ofbeldi |
200 |
Útlendingamál |
200 |
Stafræn íslenska |
170 |
Loftslagssjóður |
200 |
Græna hagkerfið |
70 |
Menningarmál |
40 |
Ríkisskattstjóri |
58 |
Samtals: |
16.011 |
Tekjur |
mkr |
Orkuskattur |
2.000 |
Skatteftirlit |
4.000 |
Arður af bönkum |
8.000 |
Veiðigjöld |
3.000 |
Samtals |
17.000 |