Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hefur beðið Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, afsökunar á því ef hún hafi móðgað hann eða sært þegar hún sagðist ekki hafa viljað sitja við hliðiná honum á Alþingi á síðasta þingvetri. Hún hvetur Jón einnig til þess að biðja sig, og Björk Guðmundsdóttur, opinberlega afsökunar. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu frá Birgittu á Facebook í morgun.
Jón sagði sjálfur í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun að ummæli sem hann lét falla um Björk Guðmundsdóttur hafi kunnað að vera ósanngjörn.
Birgitta sagði frá því í gærmorgun að henni hefði liðið mjög illa þegar hún sat við hliðina á Jóni Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og formanni atvinnuveganefndar, á síðasta þingi. „[Ég] gerði allt sem ég gat til að fá að vera flutt. Mig langaði oft ekki í vinnuna því mér leið svo illa við hliðina á þessum manni.“
Hún hafði áður birt stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hún sagði að Jón myndi aldrei biðjast afsökunar á sínum „dylgjum og mannvonsku“ í garð Bjarkar Guðmundsdóttur listamanns.
Jón hafði áður sagt að hann skildi ekkert í Björk eftir að hún kallaði formenn stjórnarflokkanna sveitalubba í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina, sagði hana daufa til augnanna og velti því fyrir sér hvort hún borgaði skatta hérlendis. Jón vakti athygli á ummælum Birgittu í þinginu í gær og lýstu furðu sinni á þeim.
Björk útskýrði sín ummæli í stöðuuppfærslu á Facebook í gær og tók þar sérstaklega fram að hún greiddi sannarlega skatta hérlendis.
Og nú hefur Birgitta beðið Jón afsökunar á ummælum sínum. Í stöðuuppfærslunni segir hún:„Í ljósi umræðum um mig og Jón Gunnarsson þá vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Ég bað ítrekað um að fá að skipta um sæti á síðasta þingvetri og það vita allir hjá yfirstjórn þingsins vegna þess hvernig Jón hagaði sér gagnvart mér, stöðugt að skjóta í mann ónotum án nokkurs tilefnis. Það hefur nákvæmlega ekki neitt með pólitík að gera. Ég er með þykkan skráp og allt það, en ófyrirséð og stöðugt áreiti er þungbært þegar maður er fastur við hliðina á einhverjum í margra klukkutíma atkvæðagreiðslum. En mér er enginn vorkun, það hafa það margir miklu meira skítt en ég og þetta mál snýst ekki um mig heldur þær dylgjur sem þingmaðurinn viðhafði gagnvart Björk sem hann hefur ekki sýnt neina tilburði til að biðjast afsökunar á. Ég er alveg tilbúin að biðja Jón Gunnarsson afsökunar ef ég hef móðgað hann eða sært. Hann væri maður með meiri ef hann bæði Björk Guðmundsdóttur opinberlega afsökunar. Jón Gunnarsson hér með bið ég þig innilegrar afsökunar á mínum hlut og ef orð mín hafa sært eða meitt þig. Ég ætla ekki með þetta inn í þingsal eins og þú gerðir í gær enda aðrir og mikilvægari hlutir sem þar þarf að ræða um."