Vigdís Hauksdóttir segir ASÍ vera notað gegn stjórnvöldum

vigdís hauksdóttir
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefnd­ar, segir Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) vera öfl­ug­ustu stjórn­ar­and­stöðu sitj­andi rík­is­stjórn­ar. Í stöðu­upp­færslu á Face­book segir hún að það sé með ólík­indum að ASÍ skuli vera notað með þessum hætti mót stjórn­völdum - hvað segja stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­innar sem greiða í aðild­ar­fé­lög ASÍ?"



Auglýsing

Sá háttur sem Vig­dís á við ályktun sem mið­stjórn ASÍ sendi frá sér fyrr í dag þar sem áhuga- og úrræð­ar­leysi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna gagn­vart hags­munum og aðstæðum þeirra tekju­lægstu í sam­fé­lag­inu er harð­lega gagn­rýnt. Þar eru áherslur í fjár­lögum sagðar rangar og sagt að hækk­anir á bætur almanna- og atvinnu­leys­is­trygg­inga sitji eftir á sama tíma og skuldir eigina­fólks séu lækk­að­ar. 

Álykt­un­ ASÍ

Álykt­un mið­stjórn­­ar ASÍ um rang­ar áhersl­ur í fjár­­lög­um

Mið­stjórn ASÍ gagn­rýn­ir harð­lega áhuga- og úrræð­al­eysi rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­anna þegar kem­ur að hags­mun­um og aðstæðum þeirra tekju­lægstu í sam­­fé­lag­inu. Enn er minn­is­­stæð lækk­­un tekju- og eigna­skatta stór­­eigna- og há­­tekju­­fólks og lækk­­un auð­linda­skatta sem leiðir til kall­ar á nið­ur­­­skurð rík­­is­út­­gjalda, þ.m.t. heil­brigð­is­mála. Þessi rík­­is­­stjórn hækk­­ar skatt á mat en lækk­­ar skatta á lúx­usvör­­ur. Hækk­­an­ir á bót­um al­­manna- og at­vinn­u­­leys­is­­trygg­inga sitja eft­ir á sama tíma og skuld­ir eigna­­fólks eru lækk­að­ar.

Í því fjár­­laga­frum­varpi sem nú er til umræðu stend­ur ekki til að mæta nauð­syn­­legri fjár­þörf heil­brigð­is­­kerf­is­ins vegna þeirra kjara­­samn­inga sem gerðir hafa ver­ið. Það mun óhjá­­kvæmi­­lega leiða til dýr­­ari og lak­­ari lækn­is­þjón­­ustu. Á sama tíma er verið að und­ir­­búa enn frek­­ari mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­­kerf­is­ins. Fyr­ir ligg­ur að nú þegar hef­ur hóp­ur fólks ekki efni á að nýta sér þessa þjón­­ustu.

Þrátt fyr­ir að all­ir kjara­­samn­ing­ar sem ríkið hef­ur staðið að miði við að hækk­­un launa verði aft­­ur­­virk frá og með 1. maí sl. og Kjara­ráð hafi hækkað laun alþing­is­­manna og ráð­herra frá og með 1. mars, hafn­ar rík­­is­­stjórn­­in að hækka bæt­ur al­­manna­­trygg­inga með sam­­bæri­­leg­um hætti og nem­ur hækk­­un lægstu launa og miða við 1. maí. Á sama tíma legg­ur meiri­hluti efna­hags- og skatta­­nefnd­ar til breyt­ing­ar á tekju­skatts­frum­varpi fjár­­­mála­ráð­herra og heim­ila fulla sam­skött­un tekna hjóna/​­sam­býl­is­­fólks sem gæti lækkað tekju­skatt þeirra sem eru með meira en 1,4 millj­­ón kr. á mán­uði um allt að 900 þús. kr. á ári. Þessi aðgerð er tal­in kosta rík­­is­­sjóð um 3.500 millj­­ón­ir króna á ári.

Áhuga­­leysi rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­ar á mál­efn­um og aðstæðum tekju­lágra fjöl­­skyldna end­­ur­­spegl­­ast einnig í hús­næð­is­mál­­um. Mik­il vinna hef­ur verið lögð í mót­un til­­lagna um nauð­syn­­leg úrræði, einkum veru­­lega hækk­­un húsa­­leig­u­­bóta og nýtt fé­lags­­legt húsa­­leig­u­­kerfi. Breið sam­staða náð­ist um þá nið­ur­­­stöðu. Þrátt fyr­ir að rík­­is­­stjórn­­in héti því að beita sér fyr­ir að lög­­­festa þess­ar breyt­ing­ar á haust­þingi, er fyr­ir­­séð að þessi mál muni drag­­ast fram á næsta ár. Mið­stjórn ASÍ lýs­ir fullri ábyrgð af þess­um drætti á fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, en fyr­ir­­séð er að þetta er for­­send­u­brest­ur gagn­vart end­­ur­­skoðun kjara­­samn­inga í fe­brú­­ar.

Mið­stjórn ASÍ hafn­ar þeim áhersl­um og for­­gangs­röðun sem lýst er hér að fram­­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None