Hefur aldrei upplifað annan eins þrýsting og vegna viðskiptabanns Rússa

Gunnar Bragi
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra segir að við­skipta­bannið sem Rússar settu á vörur frá Íslandi hafi verið erf­ið­asta mál sem hann hafi tek­ist á við í emb­ætti. Í við­tali við DV seg­ist hann hafa saknað þess að skynja ekki meiri stuðn­ing við mik­il­vægi þeirra sjón­ar­miða sem Íslend­ingar hefðu lagt upp með í mál­in­u. Auð­vitað eru miklir hags­munir undir á Íslandi. Þetta kemur illa við ákveðin byggð­ar­lög að ein­hverju leyti en er samt ekki jafn slæmt og hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi vildu meina í upp­hafi. Það er bara þannig að við getum ekki látið prinsippaf­stöðu víkja fyrir stund­ar­hags­mun­um, þó þeir séu verð­mikl­ir. Við erum smá­ríki og leggjum okkar upp úr því að alþjóð­legir sátt­málar og samn­ingar hald­i."

Dmi­try Med­vedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti í ágúst að Ísland hefði ver­ið bætt við á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vörur frá. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evr­ópu­sam­bands­lönd­um, Banda­ríkj­unum og Ástr­alíu en þessi lönd standa saman að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi vegna átak­anna í Úkra­ínu. Útgerð­ar­menn héldu því fram að tjón Íslands vegna þessa yrði gríð­ar­legt og mik­ill þrýst­ingur skap­að­ist, bæði póli­tískt og úr við­skipta­líf­inu, um að taka við­skipta­lega hags­muni íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fram yfir þann mál­stað sem Ísland var að sýna samtöðu í mál­inu.

Gunnar Bragi brást við hart við slíkum mál­flutn­ingi og í við­tali við Sprengisand í ágúst sagði hann það óheið­ar­legt hvernig sumir útgerð­ar­menn hafa talað um ákvörðun Íslands um að styðja við­skipta­þving­anir gegn Rúss­um. Ef menn taki eig­in­hags­muni fram yfir heild­ar­hags­muni þá velti hann því óneit­an­lega fyrir sér hvort þeir séu bestu menn­irnir til að fara með auð­lind­ina. 

Auglýsing

Gunnar Bragi segir í við­tal­inu við DV að hann hafi aldrei upp­lifað neitt í lík­ingu við þann þrýst­ing sem hann var beittur í mál­in­u. „Það er óhætt að segja að þrýst­ing­ur­inn sé af ýmsum toga og úr ýmsum átt­um. En það hafa engin rök verið færð fram þannig að ástæða sé til að breyta þessu. Þetta hefur verið mjög þungt og ég hef fundið að það voru alltof margir í sam­fé­lag­inu sem eru reiðu­búnir til að taka til fót­anna þegar svona þrýst­ingur mynd­ast. En þá verður maður sjálfur að setj­ast niður og hugsa hvað er rétt og hvað er rangt, hvað er eðli­legt og hvað er óeðli­leg­t.[...]Þetta er umdeilt innan flokks­ins[Fram­sókn­ar­flokks­ins)[...]Það eru vissu­lega aðilar innan flokks­ins sem hafa ekki verið hrifnir af þessu. Þeir hafa sín rök, þó ég sé ekki sam­mála þeim."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None