Samkeppniseftirlitið segir já við kaupum Björns Inga á vikublöðum

bjorninginota-1.jpg
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur gefið grænt ljós á kaup ­Pressunnar ehf., félags sem stýrt er af Birni Inga Hrafns­syni, á tólf blöð­u­m ­sem útgáfan Fót­spor gaf áður út. Pressan heldur meðal ann­ars úti fjöl­miðl­unum DV, dv.is, press­an.is og eyj­an.is auk ­stað­ar­blað­anna sem félagið keypti af Fótspori.

Í ákvörðun eft­ir­lits­ins segir að eftir rann­sókn og með­ hlið­sjón af gögnum máls­ins sé „ það mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að sam­run­inn hindri ekki ­virka sam­keppni á mörk­uðum máls­ins og leiði ekki til mynd­unar eða styrk­ingar á mark­aðs­ráð­andi stöðu. Þá leiðir sam­run­inn ekki til þess að sam­keppni á mark­að­i rask­ist að öðru leyti með umtals­verðum hætti. Því eru ekki for­sendur til að að­haf­ast vegna sam­run­ans.“

Varn­ar­orð fjöl­miðla­nefndar

Í ákvörð­un­in­inni seg­ir hins vegar einnig að Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið taki samt sem áður „að fullu undir varn­að­ar­orð fjöl­miðla­nefndar og beinir þeim til­mælum til sam­runa­að­ila að hafa hlið­sjón af þeim.“

Auglýsing

Í umsögn sinni seg­ir ­fjöl­miðla­nefnd að sjálf­stæði rit­stjórna þeirra blaða sem Fót­spor gaf áður út verði að vera „áfram tryggt og að rit­stjórnum sem lagt hafa áherslu á gagn­rýna og afhjúp­and­i um­fjöllun verði gert kleift að gera það áfram. Verði raunin sú að rit­stjórn­ar­stefna þeirra ­blaða sem lagt hafa áherslu á gagn­rýn­inn frétta­flutn­ing fær­ist í átt að hefð­bundn­ari um­fjöll­un­ar­efnum land­byggð­ar­miðla er ljóst að mati fjöl­miðla­nefndar að gagn­rýn­um ­röddum á fjöl­miðla­mark­aði fækki og þar með minnki fjöl­breytni fjöl­miðla­efn­is. Af þeim á­stæðum sé mik­il­vægt að tryggja sjálf­stæði rit­stjórna og þannig megi koma í veg fyr­ir­ að fjöl­breytni fjöl­miðla­efnis minnki."

Í athuga­semdum Pressunnar við umsögn fjöl­miðla­nefndar var því mót­mælt að fjöl­ræði og fjöl­breytni minnki með sam­run­an­um. Því var sér­stak­lega ­mót­mælt „að gagn­rýnum röddum fækki þar sem tryggt verði að rit­stjórar blað­anna muni hafa fullt rit­stjórn­ar­legt sjálf­stæð­i.“

Þegar búið að ráða nýja rit­stjóra

Pressan keypti útgáf­una ­Fótspor, sem gefur út ýmis viku­blöð víðs­vegar um land­ið, í júlí síð­ast­liðn­um. ­Samn­ingum við rit­stjóra blað­anna, sem voru verk­takar, var rift í kjöl­far­ið. Á meðal þeirra voru Björn Þor­láks­son, sem rit­stýrði Akur­eyri viku­blaði, og Ingi­mar ­Karl Helga­son, sem rit­stýrði Reykja­vík viku­blaði.

Þegar hafa ver­ið ráðnir nýir rit­stjórar á suma viku­blaða­miðl­anna og útgáfa þeirra hefur hafist að nýju. Björn Jón Braga­son var til að mynda ráð­inn nýr rit­stjóri Reykja­vík­ur­ viku­blaðs í októ­ber. Á sama tíma var Sig­urður Ing­ólfs­son ráð­inn rit­stjóri Aust­ur­lands viku­blaðs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None