Björg Eva Erlendsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vinstri grænna. Um er að ræða hálft starf til að byrja með. Í tilkynningu frá flokknum vegna þessa segir að Björg Eva hafi stýrt rekstri og framkvæmd samstarfs flokkahóps Vinstri grænna í Norðurlandaráði og formannasamstarfi sömu flokka undanfarin sex ár. Hún mun sinna því starfi áfram samhliða störfum fyrir Vinstri græn til að byrja með. „Björg Eva á fjölbreyttan feril að baki sem fréttamaður og stjórnandi í tveimur löndum. Lengst af vann hún hjá Ríkisútvarpinu. Hún hefur lokið háskólaprófi í íslensku, norsku og blaðamennsku og stefnir að útskrift sem meistari í Norðurlandafræðum frá Háskóla Íslands. Björg Eva hefur verið virk í umhverfisbaráttu og félagslífi. Hún er formaður Norræna félagsins í Reykjavík og hefur setið í stjórn Ríkisútvarpsins síðustu ár."
Daníel Haukur Arnarson, sem stjórnað hefur skrifstofu Vinstri grænna síðastliðin ár mun starfa við hlið Bjargar Evu í hlutastarfi.
Í september var Rósa Björk Brynjólfsdóttir ráðin sem framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna.