DV ehf., útgáfufélag DV og DV.is, tapaði 124 milljónum króna á árinu 2014. Skuldir félagsins jukust að sama skapi um rúmlega 90 milljónir króna á árinu og stóðu í 207 milljónum króna í lok þess. Hreint rekstrartap DV ehf., áður en félagið greiddi af lánum sínum en að teknu tilliti til afskrifta, var rúmlega 119 milljónir króna. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi DV.
Kjarninn greindi frá því fyrir helgi að skuldir Pressunnar ehf., sem á 70 prósent hlut í DV, hafi aukist úr tæpum 69 milljónum króna í 271,7 milljónir króna á árinu 2014. Félagið, sem er að stærstum hluta í eigu Björns Inga Hrafnssonar og Arnars Ægissonar, eignaðist ráðandi hlut í DV seint á því ári. Samhliða aukinni skuldasöfnun jókst bókfært virði eigna félagsins umtalsvert. Það þrefaldaðist á árinu 2014. Þetta kom fram í ársreikningi Pressunnar sem birtur var í vikunni. Þar kemur ekki fram hverjir lánveitendur félagsins eru né hvenær lán þess eru á gjalddaga.
Í ársreikningi DV ehf. segir að árið 2014 hafi verið „afar stormasamt í rekstri DV ehf. Miklar deilur stóðu stóran hluta ársins um eignarhald blaðsins og bitnaði það mjög á útgáfunni, hafði áhrif á sölu auglýsinga, áskriftir og lausasölu. Pressan ehf. eignaðist síðla árs stærstan hluta hlutafjár í DV ehf. og tók formlega við stjórnartaumunum rétt fyrir jólin 2014. Árið ber því að skoða í því ljósi að nokkuð oft var skipt um stjórn í DV ehf. á árinu, stjórnarformenn voru þrír, framkvæmdastjórar þrír og fjöldi starfsmanna á uppsagnarfresti, sem óhjákvæmilega kom niður á afkomunni.“
Eigendaskipti urðu á DV árið 2014
Haustið 2014 áttu sér stað mikil átök um yfirráð yfir DV. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, ásamt samstarfsmönnum sínum, höfðu þá átt og stýrt DV um nokkurt skeið en fengið fjárhagslega fyrirgreiðslu víða til að standa undir þeim rekstri, meðal annars hjá Gísla Guðmundssyni, fyrrum eiganda B&L. Þeim kröfum var síðan breytt í hlutafé sem dugði til að taka yfir DV. Í átökunum kom maður að nafni Þorsteinn Guðnason fram fyrir hönd þeirra krafna. Ólafur M. Magnússon, fyrrum stjórnarmaður í DV, sagði í samtali við Kjarnann í október 2014 að menn tengdir Framsóknarflokknum hefðu viljað kaupa DV. Framkvæmdastjóri flokksins hafnaði því í kjölfarið í yfirlýsingu.
DV var skömmu síðar selt til hóps undir forystu Björns Inga Hrafnssonar. Kaupin voru gerð í nafni félags sem heitir Pressan ehf. Kaupverðið hefur ekki verið gert opinbert.
Eigendur Pressunnar ehf. eru að stærstu leyti félög í eigu Björns Inga Hrafnssonar og Arnars Ægissonar, samstarfsmanns hans í fjölmiðlarekstri til margra ára. Þeir eiga samtals tæplega 40 prósent í félaginu. Auk þess á áðurnefndur Þorsteinn Guðnason 18 prósent hlut, Sigurður G. Guðjónsson lögmaður á tíu prósent, Jón Óttar Ragnarsson á ellefu prósent, Steinn Kári Ragnarsson á tíu prósent og Jakob Hrafnsson, bróðir Björns Inga, á átta prósent.