Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að lög á Íslandi komi í veg fyrir að einstaklingar geti höfðað skaðabótamál gegn ríkinu þegar dómstólar fara ekki að EES-rétti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EFTA sem birt var í dag. Stofnunin telur að íslenska ríkið gæti því orðið skaðabótaskylt þegar dómar brjóta gegn EES-rétti.
Fram kemur í tilkynningunni að ESA hafi komist að þessari niðurstöðu eftir rannsókn í tilefni kvörtunar frá aðila sem taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna rangrar túlkunar Hæstaréttar á EES-rétti.
Í rökstuddu áliti sem Eftirlitsstofnun EFTA gaf út í í dag er þess krafist að Ísland fylgi meginreglunni um skaðabótaábyrgð ríkis vegna brota á reglum EES-réttar, en sú meginregla tekur einnig til brota dómstóla. Sjálfstæði dómstóla er þó ekki dregið í efa, né heldur að dómarnir séu endanlegir.
Meginreglan um skaðabótaábyrgð ríkis krefst þess að bætur séu greiddar en ekki endurskoðunar á niðurstöðu dómsins. Rökstutt álit er annað skrefið í meðferð samningsbrotamáls. Hafi íslensk stjórnvöld ekki brugðist við rökstudda álitinu með nauðsynlegum aðgerðum innan tveggja mánaða getur ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.