Vill að Fréttablaðið biðjist afsökunar og borgi 20 milljónir

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson segir að hann hafi ítrekað kröfu sína um 20 milljóna króna miskabætur frá Fréttablaðinu og afsökunarbeiðni. Verði blaðið ekki við kröfunni verði því stefnt. Áhugavert verði að sjá forsíðu blaðsins á morgun.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannanna tveggja.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannanna tveggja.
Auglýsing

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður tveggja manna sem kærðir voru fyrir nauðgun í fjöl­býl­is­húsi í Hlíð­unum í októ­ber síð­ast­liðn­um, hefur ítrekað kröfur sínar um að Frétta­blaðið greiði umbjóð­end­um hans sam­tals 20 millj­ónir króna í miska­bætur og biðj­ist afsök­unar vegna um­fjöll­unar blaðs­ins um mál­ið. RÚV greindi frá því að hér­að­sak­sókn­ari hefði fellt niður mál mann­anna tveggja. 

Önnur kona kærði annan mann­anna einnig fyrir nauðgun í sömu íbúð. Það mál er enn til rann­sókn­ar. 

Í frétt Frétta­blaðs­ins var sagt frá rann­sókn lög­reglu á tveimur aðskildum kyn­ferð­is­brota­málum vegna meintra árása sem átt hefðu sér stað í fjöl­býl­is­húsi í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í októ­ber. Tvær ­konur kærðu tvo karl­menn fyrir kyn­ferð­is­brot í mál­inu og í frétt Frétta­blaðs­ins sagði að „Sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins voru árás­irnar hrotta­legar og íbúðin búin tækjum til ofbeld­isiðk­un­ar“. Í fyr­ir­sögn for­síðu­fréttar blaðs­ins mánu­dag­inn 9. nóv­em­ber stóð „Íbúð í Hlíð­unum var út­búin til nauð­gana“ og fram kom í frétt­inni að mönn­unum hafði svo verið sleppt að lok­inni skýrslu­töku. 

Auglýsing

Fréttin vakti mikla athygli og varð meðal ann­ars til­efni fjöl­menna mót­mæla við lög­reglu­stöð­ina seinna sama dag.   

Forsíða Fréttablaðsins 9. nóvember.

Vil­hjálm­ur, sem er eins og áður segir lög­maður mann­anna, vís­aði frétt­inni á bug. Hann sendi í nóv­em­ber 2015 kröfu­bréf til Krist­ínar Þor­steins­dótt­ur, útgef­anda og aðal­rit­stjóra 365, sem Frétta­blaðið til­heyr­ir, þar sem hann fór fram á leið­rétt­ingu á frétt­inn­i, afsök­un­ar­beiðni og miska­bætur upp á tíu millj­ónir króna fyrir hvorn mann­anna. Þeirri kröfu var hafn­að.

Tveimur dögum síð­ar­ ­skrif­aði Kristín leið­ara þar sem sagði að ekk­ert í fréttum Frétta­blaðs­ins af mál­inu hafi gefið til­efn­i til þess að blaðið biðj­ist afsök­unar á frétta­flutn­ingn­um. Fréttin hafi bara ver­ið „­góð blaða­mennska.“ Frétta­blaðið hafi forð­ast að lýsa atvikum sem til­ um­fjöll­unar voru með of nákvæmum hætti. Ber­orð­ustu lýs­ing­arnar hafi komið fram hjá RÚV.

Vil­hjálmur segir að nú sé komin upp ný staða í mál­inu. „Frétta­blaðið og 365 hlýtur að horfast í augu við þann veru­leika að þau hafa farið offari í umfjöllum um umbjóð­endur mína, sak­fellt þá á síð­u­m Frétta­blaðs­ins og kveikt í þeirri galdra­brennu sem síðar fór fram hjá almenn­ing­i á sam­fé­lags­miðl­um. Ég hef ítrekað fyrri kröfur mínar við lög­mann 365 og upp­lýst að umbjóð­endur mínir séu reiðu­búnir að hlusta á við­brögð þeirra. Ég vona að 365 og Frétta­blaðið sjái að sér og komi til móts við kröfur umbjóð­enda mína með­ ein­hverjum hætti. Ann­ars verður þeim stefnt. Það verður því for­vitni­legt að sjá for­síðu Frétta­blaðs­ins á morgun og hvort þau biðj­ist afsök­un­ar. Það væri æski­leg­t.“ Hann full­yrðir að ekk­ert í rann­sókn lög­reglu hafi stutt við þá full­yrð­ingu Frétta­blaðs­ins að íbúðin hafi verið útbúin til nauð­gana. 

Kristín Þor­steins­dóttir vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leit­að. Hún­ ­sagð­ist mundu senda út yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla síðar í dag.

Upp­fært klukkan 18:14:

Kristín Þor­steins­dóttir hefur hætt við að senda frá sér yfir­lýs­ingu og ætlar ekk­ert að tjá sig um mál­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None