Hluturinn sem Landsbankinn seldi í Borgun hefur rúmlega þrefaldast í virði

Borgun er metin á allt að 26 milljarða króna. Fyrirtækið var metið á um sjö milljarða króna í viðskiptunum þegar Landsbankinn seldi 31,2 prósent hlut sinn í því.

Hópur fólks mótmælti viðskiptum Landsbankans með Borgun í höfuðstöðvum hans nýverið.
Hópur fólks mótmælti viðskiptum Landsbankans með Borgun í höfuðstöðvum hans nýverið.
Auglýsing

Greiðslu­korta­fyr­ir­tækið Borgun er metið á 19 til 26 millj­arða króna, sam­kvæmt virð­is­mati sem KPMG hefur unnið fyrir stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Sam­kvæmt því er virði þess 31,2 pró­sent hlutar í Borgun sem Lands­bank­inn, sem er að mestu í rík­i­s­eigu, seldi á 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014 nú sex til átta millj­arðar króna. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. 

Ef miðað er við mið­gildi verð­mats­ins þá er hlut­ur­inn sem Lands­bank­inn seldi nú met­inn á sjö millj­arða króna, og hefur því rúm­lega þre­fald­ast í virði á þeim rúmu 14 mán­uðum sem liðnir eru frá því að rík­is­bank­inn seldi hann til hóps stjórn­enda Borg­unar og með­fjár­festa þeirra. 

Í efri mörkum virð­is­mats­ins, sem gerir ráð fyrir því að virði Borg­unar sé 26 millj­arðar króna, er fullt til­lit tekið til þeirra tekna sem yfir­taka Visa International Service á Visa Europe gæti tryggt Borg­un. 

Auglýsing

Selt bak­við luktar dyr

Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun til félags í eigu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festa þeirra þann 25. nóv­em­ber 2014 fyrir 2,2 millj­arða króna. Fjár­festa­hóp­ur­inn gerði fyrst til­boð í hlut­inn í mars 2014. Hlutur Lands­bank­ans, sem er að mestu í rík­i­s­eigu, var ekki seldur í opnu sölu­ferli. Öðrum mögu­lega áhuga­sömum kaup­endum bauðst því ekki að bjóða í hlut­inn. Kjarn­inn upp­lýsti um það þann 27. nóv­em­ber 2014 hverjir hefðu verið í fjár­festa­hópnum og hvernig salan hefði gengið fyrir sig. Á meðal þeirra var Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Miðað við hefð­bundna mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast við í fjár­fest­ingum þótti verðið lágt, hvort sem miðað er við fyr­ir­tæki erlendis eða skráð fyr­ir­tæki á Íslandi.

Kjarn­inn greinir frá því þann 29. apríl 2015 að ákveðið hefði verið á aðal­fundi Borg­unar í febr­úar sama ár að greiða hlut­höfum félags­ins 800 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014, þegar Lands­bank­inn var enn eig­andi að tæp­lega þriðj­ungs­hlut. Þetta var í fyrsta sinn sem arður var greiddur út úr félag­inu frá árinu 2007. Tæp­lega 250 millj­ónir króna féllu í hlut nýrra hlut­hafa, sem hefðu runnið til Lands­bank­ans ef hann hefði ekki selt hlut­inn.

Nýt­ing á val­rétti skapar millj­arða fyrir íslensk fyr­ir­tæki

Samið var um val­rétt um kaup Visa Inc. á Visa Europe árið 2007. Val­rétt­ur­inn var ótíma­bund­inn. Nokkrum sinnum frá þeim tíma hafa farið af stað við­ræður um að Visa Inc. nýti kaup­rétt­inn. Þegar að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í borgun var í gildi vilja­yf­ir­lýs­ing um að ganga frá kaup­un­um. Fjórum dögum áður en Lands­bank­inn til­kynnti um söl­una á hlut sínum í Borgun birt­ist frétt á  heima­síðu Bloomberg-frétta­veit­unar, sem er ein stærsta við­skipta­f­rétta­veita í heimi, um að Visa Inc. gerði sér grein fyrir því að fyr­ir­tækið þyrfti að greiða meira en 1.300 millj­arða króna ef það ætl­aði að nýta sér val­rétt sinn á kaupum á Visa Europe. Lands­bank­inn hefur borið fyrir sig að Valitor hafi gefið út Visa-kort fyrir bank­ann og því hafi hann ekki talið sig eiga jafn mikla hags­muni að gæta vegna val­rétt­ar­ins hjá Borg­un. Í nóv­em­ber 2015 lá fyrir að Visa Europe yrði selt og á hvaða verði.

20. jan­úar 2016 birti Morg­un­blaðið for­síðu­frétt um að kaup Visa Inc. á Visa Europe gætu skilað Borgun og öðru íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tæki, Valitor, á annan tug millj­arða króna. Visa Inc. mun lík­ast til greiða um þrjú þús­und millj­arða króna fyrir Visa Europe og það fé mun skipt­ast á milli þeirra útgef­enda Visa-korta í Evr­ópu sem eiga rétt á hlut­deild í Visa Europe. Lands­bank­inn átti hlut í bæði Borgun og Valitor. Þegar bank­inn seldi hlut sinn í Borgun gerði hann ekki sam­komu­lag um hlut­deild í sölu­and­virði Visa Europe. Þegar hann seldi hlut sinn í Valitor í apríl 2015 gerði hann sam­komu­lag um við­bót­ar­greiðslu vegna þeirrar hlut­deildar Valitor í sölu­and­virði Visa Europe. Stjórn­endur Borg­unar hafa sagt að þeir hafi fyrst fengið upp­lýs­ingar um hugs­an­legan ávinn­ing fyr­ir­tæk­is­ins vegna söl­unar á Þor­láks­messu 2015.

Eig­endur Borg­unar í dag eru Íslands­banki með 63,47 pró­sent hlut, Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun með 29,38 pró­sent hlut og BPS ehf., félag í eigu starfs­manna og stjórn­enda Borg­un­ar, sem á fimm pró­sent hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None