Bæring Ólafsson, fyrrum forstjóri og framkvæmdastjóri Coca Cola International, hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Bæring er annar einstaklingurinn sem bætist í ört vaxandi hóp forsetaframbjóðenda á tveimur dögum, en Halla Tómasdóttir tilkynnti um forsetaframboð sitt í gær.
Í fréttatilkynningu frá Bæring segir að hann hafi „unnið sig til æðstu metorða síðastliðin 25 ár í starfi á Íslandi, í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Bæring hefur víðtæka reynslu á stórum markaðssvæðum og verið ábyrgur fyrir fyrirtækjum með allt að 17 þúsund manns í vinnu og með árlega veltu frá 150 til 450 milljörðum króna."
Bæring er fæddur á Patreksfirði 22. nóvember 1955. Á yngri árum starfaði hann m.a. við sjómennsku, í byggingaiðnaði og sölumennsku. Árið 1984 fluttist hann til Oregon og stundaði þar nám í viðskiptafræði við University of Oregon til 1987. Bæring er giftur Rose Olafsson bæjarstjóra og á sex börn og sex barnabörn.