92 prósent þeirra sem horfðu á sjónvarp sáu Kastljósþáttinn

Sigmundur labbar út
Auglýsing

Sam­kvæmt bráða­birgða­tölum frá Gallup var með­al­á­horf á Kast­ljós­þátt gær­dags­ins 49 pró­sent og upp­safnað áhorf á þátt­inn var 58 pró­sent. Þá var þátt­ur­inn með 92 pró­sent hlut­deild á meðal þeirra sem voru að horfa á sjón­varp á meðan að hann stóð yfir. Inni í þessum tölum eru ekki upp­lýs­ingar um þá sem horfðu á Kast­ljós­þátt­inn á net­inu.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var aðal­um­fjöll­un­ar­efni sér­staks Kast­ljós­þáttar um aflands­fé­laga­eign íslenskra stjórn­mála­manna sem sýndur var í gær. Þar gekk hann meðal ann­ars út úr við­tali við sænska sjón­varps­mann sænska rík­is­sjón­varps­ins og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóra Reykja­vík Media, þegar hann var spurður út í aflands­fé­lagið Wintr­is. Fjórum dögum eftir að við­talið var tekið opin­ber­aði eig­in­kona Sig­mundar Davíð að hún ætti erlent félag í stöðu­upp­færslu á Face­book. Síðar kom í ljós að Wintris var einnig stór kröfu­hafi í bú allra föllnu bank­anna og að Sig­mundur Davíð var sjálfur eig­andi helm­ings­hlutar í félag­inu þegar þeir kröfum var lýst. Fjallar var um málið í tugum fjöl­miðla út um allan heim í gær. Þeirra á meðal voru BBC, DR, NRK,SVT, The Guar­di­an, Aften­posten, Le Monde og þýska stór­blað­ið Suedd­eutsche Zeit­ung, sem leiddi umfjöll­un­ina alþjóð­lega.



Auglýsing

Fleiri voru til umfjöll­unar í Kast­ljós­þætt­inum heldur en Sig­mundur Dav­íð.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, átti 40 millj­óna hlut í félagi sem skráð var á Seychelles-eyj­um. Farið var yfir skrán­ingu fyr­ir­tæk­is­ins Falson og Co. sem Bjarni átti hlut í. Hann hafði áður neitað því að eiga, eða hafa átt, pen­inga í skatta­skjól­um. Bjarni sagði félagið hafa verið stofnað í kring um félag sitt og félaga sinna til að kaupa fast­eign í Dubai, sem varð þó aldrei af. Hann svar­aði fyrir þetta í síð­ustu viku svo að hann hafi haldið að félagið hafi verið skráð í Lux­em­borg, en ekki á skatta­skjóls­eyj­un­um. Félagið var sett í afskrán­ing­ar­ferli 2009. 

Fjallað var um mál­efni Ólafar Nor­dal, inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og eig­in­manns henn­ar, Tómasar Sig­urðs­son­ar, þáver­andi for­stjóra Alcoa á Íslandi. Hún er þriðji ráð­herr­ann í gögn­un­um. Tveimur dögum eftir að hún sigr­aði í próf­kjöri voru Ólöf og Tómas skráðir próf­kúru­hafar Dooly Securities á Tortólu. Félagið var sett á lagg­irnar fyrir þau hjón og heim­ildir þeirra voru til stað­ar. Hluta­bréfin voru hand­veð­sett með sam­komu­lagi í ágúst 2007. Félagið var afskráð 2012 á Tortólu. Ólöf skráði aðild sína að félag­inu aldrei í hags­muna­skrá. 

Þá var Júl­íus Víf­ill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til umfjöll­unar vegna vörslu­sjóðs sem hann á í Panama. Júl­íus gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í vik­unni þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eigna­stofn­un. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Founda­tion. 

Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­valla­vina, var einnig til umfjöll­un­ar. Svein­björg átti hlut­deild í aflands­fé­lagi sem var í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í Panama. Á heima­síðu Reykja­vik Media kemur fram að Svein­björg sé skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lög­fræði­stof­unar Mossack Fon­seca; 7Call­in­vest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Sjálf hefur hún í störfum sínum í borg­ar­stjórn ítrekað lýst sig and­víga því að Reykja­vík­ur­borg eða fyr­ir­tæki á hennar vegum eigi aðild að fyr­ir­tækjum á aflandseyj­u­m. 

Þá var fjallað um mál­efni Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dótt­ur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og eig­in­manns henn­ar, Hall­bjarnar Karls­sonar verk­fræð­ings. Þor­björg og Hall­björn eru skráð fyrir félag­inu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eigna­laust. Þor­björg Helga var kjörin í borg­ar­stjórn 2006 og sat sem borg­ar­full­trúi til árs­ins 2014. 

Eng­inn þess­ara kjörnu full­trúa skráðu félögin sín í hags­muna­skrán­ingu, hvorki á Alþingi né hjá Reykja­vík­ur­borg. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None