Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun tillögu þess efnis að aflandsfélagaeign borgarfulltrúa verði könnuð til hlítar. Á fundinum var fjallað um siðareglur borgarfulltrúa og reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar. Í forsætisnefnd sitja Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, Halldór Auðar Svansson. fulltrúi Pírata og Elsa Hrafnhildur Yeoman fulltrúi Bjartrar framtíðar. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúar þau Magnús Már Guðmundsson fulltrúi Samfylkingar, Jóna Björg Sætran fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina og Halldór Halldórsson fulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Tillagan er eftirfarandi: „Í ljósi frétta af aflandsfélögum í eigu borgarfulltrúa sem fluttar hafa verið að undanförnu telur forsætisnefnd brýnt að til þess bærir aðilar kanni málin til hlítar.
Því er þess farið á leit við innri endurskoðun og regluvörð borgarinnar að kannað verði hvort borgarfulltrúarnir Júlíus Vífill Ingvarsson og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir hafi farið á svig við gildandi lög og reglur um skyldur og hæfi borgarfulltrúa, hvort reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar hafi verið fylgt og hvort siðareglur borgarfulltrúa hafi verið brotnar.
Að sama skapi er óskað eftir því að siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga taki málið til skoðunar í samræmi við hlutverk nefndarinnar og 29. gr. sveitarstjórnarlaga."
Í sérstökum Kastljósþætti sem sýndur var á sunnudag kom fram að Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ætti vörslusjóð á í Panama. Júlíus gaf út yfirlýsingu vegna málsins í síðustu viku þar sem hann sagði að sjóðurinn hafi verið stofnaður í svissneskum banka til að mynda eftirlaunasjóðinn sinn, en að honum hafi verið ráðlagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóðurinn lúti svipuðu regluverki og sjálfseignastofnun. Aflandsfélagið heitir Silwood Foundation.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallavina, var einnig til umfjöllunar. Sveinbjörg átti hlutdeild í aflandsfélagi sem var í fasteignaþróunarverkefni í Panama. Áheimasíðu Reykjavik Media kemur fram að Sveinbjörg sé skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lögfræðistofunar Mossack Fonseca; 7Callinvest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Sjálf hefur hún í störfum sínum í borgarstjórn ítrekað lýst sig andvíga því að Reykjavíkurborg eða fyrirtæki á hennar vegum eigi aðild að fyrirtækjum á aflandseyjum.
Þá var fjallað um málefni Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og eiginmanns hennar, Hallbjarnar Karlssonar verkfræðings. Þorbjörg og Hallbjörn eru skráð fyrir félaginu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eignalaust. Þorbjörg Helga var kjörin í borgarstjórn 2006 og sat sem borgarfulltrúi til ársins 2014.
Enginn þessara kjörnu fulltrúa skráðu félögin sín í hagsmunaskráningu, hvorki á Alþingi né hjá Reykjavíkurborg.