Andri Snær Magnason rithöfundur hyggst tilkynna á blaðamannafundi á morgun að hann ætli að bjóða sig fram til forseta Íslands. Þetta herma heimildir RÚV. Andri Snær hefur boðað til fundar í Þjóðleikhúsinu á morgun klukkan 17.
Andri Snær hefur lengi verið orðaður við framboð en hefur ekki viljað segja af eða á.
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur er tiltölulega nýskriðinn undir forsetafeldinn eftir frammistöðu sína á RÚV í síðustu viku við pólitískar skýringar á ástandinu. Skorað var á Guðna í kjölfarið að bjóða sig fram og hann íhugar nú málið.
Auglýsing