Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, verður ekki stjórnarformaður í einkahlutafélagi sem annast mun umsýslu og fullnustu þeirra stöðugleikaeigna sem ríkið fær vegna uppgjörs við slitabú föllnu bankanna. RÚV greindi frá því í gær að Bjarni myndi verða stjórnarformaður í félaginu.
Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu segir að um ranghermi sé að ræða. Bjarni muni skipa stjórn félagsins líkt og lög geri ráð fyrir en ekki gegna stjórnarformennsku. Unnið sé að stofnun þess og gert sé ráð fyrir að það taki til starfa á næstu dögum.
Verður risastórt félag
Um verður að ræða risastórt félag. Virði eignanna sem munu renna inn í það, sem afhentar voru ríkinu í stöðugleikaframlögum slitabúa föllnu bankanna, verður á bilinu 60 til 80 milljarðar króna. Félagið sjálft mun ekki eiga eignirnar heldur ríkið. Það mun fullnusta þær og þegar búið verður að umbreyta þeim í laust fé mun það undantekningarlaust renna inn á lokaðan reikning í Seðlabankanum.
Allt hlutafé í Íslandsbanka, sem er stærsta einstaka stöðugleikaframlag föllnu bankanna, mun renna til Bankasýslu ríkisins,ekki inn í hið fyrirhugaða eignarumsýslufélag. Aðrar eignir sem ríkinu verða afhentar munu hins vegar rata þangað.
Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, sagði í samtali við Kjarnann 1. mars að góð eining hafi verið um þá leið sem farin var við stofnun félagsins innan nefndarinnar. „Eftir að hafa skoðað alla valkosti, að hafa þetta inni í ráðuneytinu, að setja þetta mögulega í systurfélag Bankasýslunnar, nokkurs konar eignasýslu, eða hafa þetta áfram inni í Seðlabankanum var ákveðið að þetta væri besta leiðin. Að hafa eignaumsýsluna í sérstöku félagi undir fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þá verður ábyrgðarkeðjan skýrari. Það verður líka til armslengd með því að ráðherrann skipar stjórn félagsins sem síðan ræður starfsfólk.“
Gert er ráð fyrir því að 150 milljónum króna verði varið í að stofna félagið, meðal annars vegna ráðgjafar í tengslum við mat, auglýsingar, lögfræðiþjónustu „og þar fram eftir götunum“. Félaginu þarf að slíta fyrir árslok 2018.
Kúvending á tveimur og hálfum mánuði
Þetta er umtalsverð breyting frá upprunalegri áætlun stjórnvalda um hvernig ætti að fullnusta stöðugleikaframlögin. Þann 11. desember síðastliðinn lagði Bjarni Benediktsson fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands. Sú breyting sem átti að gera var í raun ekki flókin. Með henni átti Seðlabanka Íslands að verða gert kleift að stofna félag sem tæki við stöðugleikaframlögum föllnu bankanna. Um yrði að ræða viðbótarbreytingu á lögum við breytingar sem gerðar voru sumarið 2015, í kjölfar þess að stjórnvöld kynntu áætlun sína um losun hafta.
Nokkrum dögum áður en þingi var slitið í desember síðastliðnum, þegar slitabúin voru hvert af öðru að gera sig tilbúin til að greiða stöðugleikaframlögin, var lagt fram frumvarp sem hafði þann tilgang að skýra með ítarlegri hætti heimildir og skyldur þeirra sem að ferlinu koma frá því að stöðugleikaframlögin eru mótttekin og þar til að þau eru seld eða þeim ráðstafað með öðrum hætti.
Samkvæmt því átti félag í eigu Seðlabankans að verða falið að „annast umsýslu og að fullnusta og selja eftir því sem við á verðmæti sem Seðlabankinn tekur á móti í þeim tilgangi að draga úr, koma í veg fyrir eða gera kleift að bregðast við neikvæðum áhrifum á stöðugleika í gengis- og peningamálum, í stað þess að ráðherra sé heimilt að fela „sérhæfðum aðila sem starfar í umboði bankans“ verkefnin.“Það frumvarp var síðan samþykkt 17. mars og er orðið að lögum.