Framkvæmdastjóri Sameinaða hættur vegna frétta úr Panamaskjölunum

Kristján Örn Sigurðsson
Auglýsing

Krist­ján Örn Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðss­ins, hefur látið af störfum að eigin ósk í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar um tengsl hans við tvö aflands­fé­lög. Í yfir­lýs­ingu frá Krist­jáni vegna þessa seg­ir: 

„Í ljósi umræðu um mig og þeirrar stað­reyndar að nafn mitt er að finna í Panama­skjöl­unum vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Ég hef ávallt gætt þess í mínum störfum að starfa af heil­indum og fara að lögum og regl­um. Ég tel mik­il­vægt vegna þess­arar umræðu um mig að Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóð­ur­inn verði ekki fyrir skaða. Ég hef því til­kynnt stjórn sjóðs­ins að ég óski lausnar frá störfum í þeirri von að sátt megi skap­ast um sjóð­inn og starf­semi hans. 

Auglýsing

Ég hef starfað í 19 ár hjá Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðnum þar sem ég hef eign­ast marga góða vini og ég vil þakka öllu þessu góða fólki fyrir gott sam­starf í gegnum öll þessi ár."

Félög í eigu tveggja fram­­kvæmda­­stjóra íslenskra líf­eyr­is­­sjóða er að finna í skjölum panamísku lög­­fræð­i­­stof­unnar Mossack Fon­­seca. Kast­­ljós fjall­aði um Pana­ma­skjölin á mánu­dags­kvöld í sam­­starfi við Reykja­vik Media.

Um er að ræða Kára Arnór Kára­­son, nú fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri Stapa - líf­eyr­is­­sjóðs, og fram­­kvæmda­­stjóra Sam­ein­aða líf­eyr­is­­sjóðs­ins, Krist­ján Örn Sig­­urðs­­son. Kári Arnór sagði starfi sínu lausu eftir að Kast­­ljós spurði hann spurn­inga vegna Pana­ma­skjal­anna og nú hefur Krist­ján Örn gert slíkt hið sama.

Hvorki Kári Arnór né Krist­ján Örn til­­kynntu stjórnum sjóð­anna sem þeir stýrðu um við­­skipti sín.

Krist­ján Örn er tengdur tveimur félögum sem er að finna í Pana­ma­skjöl­un­um; Mika Assett og Fulcas Inc. Mika var stofnað af Lands­­bank­­anum í Lúx­emburg árið 2007. Krist­ján Örn var með umboð og pró­kúru í félag­inu, sem er skráð á Panama. Fram kom í Kast­­ljósi að svo virð­ist sem það hafi verið flutt frá Lands­­bank­­anum yfir til Nor­dea-­­bank­ans við hrun Lands­­bank­ans og svo verið lagt niður að beiðni Nor­dea árið 2014. Pró­kúra og stjórn Krist­jáns Arnar á félag­inu var þá gild til árs­loka 2010.

Krist­ján Örn sagði við Kast­­ljós að Mika hafi verið stofnað árið 2008 til að ávaxta fjár­­muni en ekki til að borga lægri skatta. Hann hafi þó ákveðið að hætta við að nota það. Hann sagð­ist ekki muna hversu mikið hann borg­aði fyrir upp­­­setn­ing­una á Mika. Hann við­­ur­­kenndi að hann hafi ekki látið stjórn líf­eyr­is­­sjóðs­ins vita.

Fulcas Inc. var stofnað af Nor­dea árið 2009. Krist­ján Örn var líka skráður pró­kúru­hafi þess og þar með raun­veru­­legur eig­andi í jan­úar 2009. Fulcas Inc er enn starf­andi. Krist­ján Örn sagð­ist í svari sínu til Kast­­ljóss að um hafi verið að ræða ein­­stök við­­skipti og nauð­­syn­­legt hafi verið að stofna félagið til að geta farið í þau við­­skipti. En ekk­ert varð af þeim við­­skipt­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None