Baldur ætlar aftur í forsetann

Baldur Ágústsson hyggst bjóða sig fram til forseta Íslands. Hann hlaut 12,5 prósent atkvæða á móti Ólafi Ragnari Grímssyni í kosningunum 2004. Guðni Th. Jóhannesson tilkynnir um mögulegt framboð sitt á fimmtudag. Guðrún Nordal ætlar ekki fram.

Baldur Ágústsson ætlar taka slaginn um Bessastaði í annað sinn.
Baldur Ágústsson ætlar taka slaginn um Bessastaði í annað sinn.
Auglýsing

Baldur Ágústs­son, fast­eigna­sali og athafna­mað­ur, ætlar að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Hann til­kynnir þetta á heima­síð­unni sinni. Baldur er nú tólfti fram­bjóð­and­inn.

Baldur bauð sig fram til for­seta á móti Ólafi Ragn­ari Gríms­syni árið 2004 og hlaut þá 12,5 pró­senta fylgi með 13.250 atkvæði.

Á heima­síðu sinni segir Baldur að mark­mið fram­boðs síns sé meðal ann­ars að end­ur­vekja virð­ing­una fyrir emb­ætti for­seta Íslands, að vekja athygli á skulda­söfnun ungs fólks, beita sér fyrir bættri þjón­ustu við sjúka, aldr­aða og öryrkja og styðja við bar­átt­una gegn fíkni­efnum og glæp­um.

Auglýsing

Guðni og Berg­lind eiga eftir að til­kynna

Guðni Th. Jóhann­es­son ætlar að til­kynna ákvörðun sína á fimmtu­dag, upp­stign­ing­ar­dag, og hefur boðað til fundar að því til­efni í Salnum í Kópa­vogi. Guðni mæld­ist með jafn mikið fylgi og Ólafur Ragnar ef valið stæði á milli þeirra, í nýrri könnun Frjálsrar versl­unar. Svar­endur könn­un­ar­innar máttu nefna hvern sem er sem þeir vildu sjá í emb­ætti for­seta.

Berg­lind Ásgeirs­dótt­ir, sendi­herra Íslands í Frakk­landi, kom til lands­ins fyrir helgi til að ræða bak­land sitt fyrir mögu­legt fram­boð. Hún var nefnd á nafn í könn­un­inni og hlaut tvö pró­sent atkvæða. Hún á eftir að til­kynna ákvörðun sína.   

Guð­rún, Ellen og Þor­gerður ætla ekki í fram­boð

Guð­rún Nor­dal, for­stöðu­maður Árna­stofn­un­ar, til­kynnti um helg­ina að hún ætl­aði ekki að bjóða sig fram. Það sama gerði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra. Ellen Calmon, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins, til­kynnti í dag að hún ætli ekki að gefa kost á sér, en hún hefur legið undir feldi í nokkurn tíma.

Eins og áður segir eru nú tólf manns í fram­boði til emb­ættis for­seta. Þó má gera ráð fyrir að ekki nái allir að safna til­skyldum fjölda und­ir­skrifta, en fram­boðs­frestur rennur út á mið­nætti 20. maí. Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla hófst um helg­ina en almenn kosn­ing verður 25. júní.

Fréttin var upp­færð klukkan 13:00 þegar Ellen Calmon til­kynnti að hún ætli ekki að gefa kost á sér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None