Stjórnmálaaflið Viðreisn hefur boðað til stofnfundar þriðjudaginn 24. maí. Þar verður kosin stjórn og stefnuyfirlýsing samþykkt. Í fréttatilkynningu frá flokknum segir að Viðreisn sé „flokkur allra þeirra sem vilja að unnið sé að almannahagsmunum og gegnsæi í pólitísku starfi. Markmiðin eru réttlátt samfélag, stöðugt efnahagslíf og fjölbreytt tækifæri. Áhersla er lögð á markaðslausnir, vestræna samvinnu, frelsi, jafnrétti og jafnan atkvæðisrétt fyrir alla. Viðreisn vill einnig að þjóðin fái svo fljótt sem auðið er að greiða atkvæði um hvort ljúka skuli viðræðum um aðild að Evrópusambandinu."
Jórunn Frímannsdóttir, fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er ein þeirra sem undirbúið hefur stofnun Viðreisnar. Hún segir að flokkurinn sé það frjálslynda stjórnmálaafl sem lengi hafi verið kallað eftir. „Íslensk stjórnmál hafa einkennst af sérhagsmunastefnu og siðleysi sem komið hefur greinilega í ljós upp á síðkastið. Þessa þróun verður að stöðva og endurvekja þarf traust almennings á fulltrúum sem kosnir eru til að gæta hagsmuna þjóðarinnar. Undanfarin tvö ár höfum við haldið marga fjölsótta mál- og stefnumótunarfundi um helstu málefni samfélagsins og það verður því spennandi þegar Viðreisn hellir sér á fullu inn í baráttuna.“