Ari Jósepsson er hættur við að bjóða sig fram til forseta Íslands. Hann hafði sagt við Fréttablaðið í gær að hann væri búinn að safna 1.500 undirskriftum meðmælenda, en frestur til að skila inn rann út klukkan 15 í dag.
Ari segir í tilkynningu sem hann sendi fréttastofu RÚV að umfjöllun um forsetakosningar í dagblöðum hafi einskorðast við umfjöllun um þá sem virðast taldir sigurstranglegastir. Hann segir að aðstæður hafi verið aðrar þegar hann ákvað að bjóða sig fram til forseta. Hans helsta ástæða fyrir framboði var að vekja athygli á að ungt fólk gæti sóst eftir opinberu embætti.
„Ég sé ekki fram á að sú vinna sem leggja þyrfti í það á næstum vikum skili tilætluðum árangri og vil ég hér með þakka þeim sem skrifuðu undir meðmælalista mína fyrir þann stuðning sem þeir sýndu mér,“ segir Ari við RÚV.