Systkini Júlíusar Vífils leita að týndum sjóðum foreldra sinna

Júlíus Vífill
Auglýsing

Erf­ingjar Ingv­ars Helga­sonar og Sig­ríðar Guð­munds­dótt­ur, systk­ini og frænd­fólk Júl­í­usar Víf­ils Ingv­ars­son­ar, ætla að fá erlent rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki til að leita að týndum sjóðum for­eldra sinna erlend­is. Um þetta verður fjallað í Kast­ljósi í kvöld

Upp­lýs­ingar úr Panama­skjöl­unum um Júl­íus Vífil settu málið í nýtt sam­hengi fyrir systk­inum hans. Guð­rún Ingv­ars­dótt­ir, systir hans, segir í Kast­ljósi að þetta hafi verið líf­eyr­is­sjóður for­eldra þeirra sem hann hafi verið að „díla með­“. 

Eftir að Ingvar Helga­son, sem átti sam­nefnt fyr­ir­tæki ásamt konu sinni, féll frá hefur verið leitað að sjóðum sem hann segir að hafi verið til erlend­is. Eftir að Sig­ríður lést í haust hafa staðið deilur vegna skipta dán­ar­bús hjón­anna. Deil­urnar snúa að stærstu leyti að eignum sem meiri­hluti erf­ingja þeirra telur að vanti í dán­ar­bú­ið. Það er vara­sjóður Ingv­ars sem hann mun hafa safnað á reikn­inga í erlendum banka af umboðs­launum frá erlendum fram­leið­endum sem hann átti í við­skiptum við. Ætt­in­gj­arnir töldu að þetta hefðu verið nokkur hund­ruð millj­ónir þegar hann lést árið 1999, sem ætti að vera vel á annan millj­arð króna í dag. 

Auglýsing

Greint var frá því í Kast­ljósi í byrjun apríl að Júl­íus Víf­ill ætti vörslu­sjóð í Panama. Hann gaf út yfir­­lýs­ingu vegna máls­ins þar sem hann sagði að sjóð­­ur­inn hafi verið stofn­aður í svis­s­­neskum banka til að mynda eft­ir­­launa­­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­­eigna­­stofn­un. Aflands­­fé­lagið heitir Silwood Founda­tion. 

Tveimur dögum eftir Kast­ljós­þátt­inn sagði Júl­íus Víf­ill af sér sem borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann kvaddi sér hljóðs á borg­ar­stjórn­ar­fundi og sagði að ekki væri um félag að ræða heldur sjóð, sem m.a. færi ekki með fast­­eign og ekki mætti veð­­setja eignir hans. Þrátt fyrir þetta ætl­­aði hann að segja af sér emb­ætti. Í kjöl­farið þakk­aði hann öllum fyrir gott sam­­starf, sér­­stak­­lega starfs­­fólki borg­­ar­innar og borg­­ar­­full­­trú­­um. Þá hafði for­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkt að kanna til hlítar aflands­fé­laga­eign borg­ar­full­trúa. Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, var skráð fyrir tveimur félög­um, einu á Tortóla og hinu í Panama. 

Hefði ekki fengið und­an­þágu

Júl­­íus Víf­ill Ing­v­­ar­s­­son, ­fyrr­ver­andi borg­­ar­­full­­trúi Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, hefði ekki fengið und­an­þág­u frá fjár­­­magns­höftum til að safna í eft­ir­­launa­­sjóð sinn sem vistaður er í aflands­­fé­lag­i í Panama ef hann hefði óskað eftir slíkri hjá Seðla­­bank­an­­um. Inn­­­lendum aðil­u­m er óheim­ilt að flytja fjár­­muni af reikn­ingum sínum hjá fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki hér á landi yfir á reikn­ing í sinni eigu hjá fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki erlendis í þeim til­­­gangi einum að halda sparn­aði erlend­­is. Þetta kemur fram í svörum Seðla­­banka Ís­lands við fyr­ir­­spurn Frétta­­blaðs­ins um mál­ið.

Þar er þó einnig bent á að inn­­­lendur aðili geti átt fjár­­muni erlendis sem séu ekki háðir skila­­skyld­u hingað til lands. Það eigi til að mynda við fjár­­muni sem hafi verið í eig­u við­kom­andi áður en fjár­­­magns­höft voru inn­­­leidd hér á landi þann 28. nóv­­em­ber 2008. Í svari Seðla­­bank­ans seg­ir: „Í slíkum til­­vikum getur inn­­­lendur aðili flutt þá fjár­­muni á milli tveggja banka­­reikn­inga í sinni eigu erlendis þar sem það telst ekki fjár­­­magns­hreyf­­ing á milli landa í skiln­ingi laga um gjald­eyr­is­­mál.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None