Mossack Fonseca stefnir Netflix

Mossack Fonseca, lögmannsstofan alræmda, hefur stefnt Netflix vegna kvikmyndar streymisveitunnar um Panamaskjölin.

Meryl Streep er ein af aðalleikurum myndarinnar.
Meryl Streep er ein af aðalleikurum myndarinnar.
Auglýsing

Lög­manns­stofan Mossack Fon­seca hefur stefnt Net­flix vegna kvik­myndar streym­isveit­unnar um Panama­skjöl­in. Í mál­sókn­inni mót­mæla lög­menn­irnir Jürgen Mossack og Ramón Fon­seca því að myndin sýni þá sem „mis­kunn­ar­lausa, óskyn­sama og sið­lausa lög­fræð­inga“ sem stund­uðu pen­inga­þvætti, skatt­svik og önnur glæp­sam­leg athæfi til hags­bóta fyrir auð­menn. Frá þessu er greint á vef New York Times. 

Stærsti gagna­leki sög­unnar

Mossack Fon­seca komst í heims­frétt­irnar fyrir þremur árum þegar Panama­skjölin voru birt. Panama­skjölin eru stærsti gagna­leki sög­unnar en í þeim mátti finna upp­lýs­ingar úr gagna­safn­i lög­fræði­stof­unn­ar Mossack Fon­seca. Upp­lýs­ingar um 210.000 aflands­fé­lög sem stofnuð voru í 21 landi víðs­vegar um heim­inn. Meðal þeirra sem keyptu þjón­ustu stof­unnar var fólk úr við­skipta­líf­inu á Íslandi auk stjórn­mála­leið­toga víðs­vegar um heim­inn. Þeirra á meðal voru fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. 

Kvik­myndin ber heitið The Laun­dro­mat eða þvotta­hús­ið. Leik­stjóri mynd­ar­innar er Steven Soder­bergh og með aðal­hlut­verk fara Meryl Streep, Ant­onio Band­eras og G­ary Old­m­an. ­Kvik­myndin er byggð á bók Jake Bern­stein: Secrecy World: Inside the Panama Papers Investigation of Illicit Money Networks and the Global Elite sem gefin var út fyrir tveimur árum. Í bók­inni fer höf­undur ofan í saumana á hvernig Mossack Fon­seca aðstoð­aði fjölda ein­stak­linga við að fela auð sinn og kom­ast hjá skatt­greiðsl­u­m. 

Auglýsing

Myndin hefur nú þegar við sýnd á kvik­mynda­há­tíðum í Fen­eyjum og Toronto sem og ákveðnum kvik­mynda­húsum en á morg­un, þann 18. októ­ber, fer hún í dreif­ingu á streym­isveit­unni Net­fl­ix. 



Vilja að dreif­ing kvik­mynd­ar­innar á Net­flix verði stöðvuð

Mossack Fon­seca hefur hins vegar höfðað mál gegn Net­flix vegna kvik­mynd­ar­innar á þeim grund­velli að þeim þyki myndin draga upp ranga mynd af félög­unum Mossack og Fon­seca. Lög­manns­stofan kærir streym­isveit­una vegna meið­yrða, inn­rás á frið­helgi einka­lífs og vöru­merkja­brota.

Lög­manns­stofan krefst meðal ann­ars þess að dóm­ari fyr­ir­skipi Net­flix að stöðva dreif­ingu mynd­ar­innar á streym­isveitu þeirra. Lög­manns­stofan heldur því fram í mál­sókn sinni að víð­tæk dreif­ing Net­flix á kvik­mynd­inni gæti leitt til frek­ari rann­sókna í Panama og gæti haft áhrif á rétt Mossack og Fon­seca til rétt­látrar máls­með­ferðar í Banda­ríkj­un­um. 

Fyr­ir­tæk­ið, sem hafði tugi skrif­stofu um allan heim, hefur verið rann­sakað af lög­gæslu­yf­ir­völdum í nokkrum löndum vegna ásak­ana um tengsl við pen­inga­þvætt­i. 

Net­flix neit­aði að tjá sig um málið við New York Times en fyr­ir­tækið hefur lagt fram beiðni um að alrík­is­dóm­stól­inn í Conn­ect­icut vísi mál­inu frá á grund­velli þess að hvorki Mossack Fon­seca né Net­flix hafi höf­uð­stöðvar í Conn­ect­icut né nokk­urs­konar tengsl þar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent