Þriðjungi þjóðarinnar finnst forsetaembættið nauðsynlegt

Um 30 prósent þjóðarinnar finnst forsetaembættið nauðsynlegt fyrir íslenskt samfélag. Tveimur af hverjum þremur finnst það mikilvægt. Næstum því þriðjungi finnst það skipta litlu máli, er fram kemur í nýrri könnun Maskínu.

Bessastaðir
Auglýsing

Rúm­lega tutt­ugu pró­sent aðspurðra finnst emb­ætti for­seta Íslands skipta litlu máli fyrir íslenskt sam­fé­lag. Tveimur af hverjum þremur finnst það skipta miklu máli, þar af finnst um 30 pró­sent emb­ættið vera nauð­syn­legt. Um 12 pró­sent vilja leggja emb­ættið nið­ur, er fram kemur í nýrri könnun Mask­ínu um mik­il­vægi for­seta­emb­ætt­is­ins. 

Tölu­verður munur er á afstöðu kynj­anna, en um 35 pró­sent karla telja for­seta­emb­ættið nauð­syn­legt í íslensku stjórn­kerfi en rúm­lega 25 pró­sent kvenna. Nán­ast sama hlut­fall beggja kynja vilja þó leggja emb­ættið nið­ur. 

Flestum þeim sem yngri eru finnst emb­ættið nauð­syn­legt, en um 47 pró­sent þeirra sem eru undir 25 ára aldri finnst það. Reyk­vík­ingum og Aust­firð­ingum finnst emb­ættið ekki eins nauð­syn­legt og íbúum ann­arra svæða. 

Auglýsing

Emb­ættið nauð­syn­legra hjá Fram­sókn

Kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins finnst emb­ættið nauð­syn­legra en kjós­endum ann­arra flokka, en um 47 pró­sent þeirra telja það nauð­syn­legt. Lægst er hlut­fallið meðal kjós­enda Vinstri grænna, en ein­ungis 16 pró­sent eru á þeirri skoð­un. 

Sé afstaða til emb­ætt­is­ins skoðuð eftir því hvaða for­seta­fram­bjóð­anda svar­endur ætla sér að kjósa í næstu kosn­ing­um, kemur í ljós að hlut­fall þeirra sem telja emb­ættið nauð­syn­legt er lægst meðal kjós­enda Höllu Tóm­as­dóttur og hæst meðal kjós­enda Dav­íðs Odds­son­ar. Meðal þeirra sem telja emb­ættið ekki nauð­syn­legt, en vilja þó ekki leggja það nið­ur, ætla flestir að kjósa Andra Snæ en fæstir Davíð Odds­son. 

Ánægja með störf Ólafs Ragn­ars

Meiri­hluti svar­enda er ánægður með störf Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar, for­seta Íslands, eða á bil­inu 63 til 64 pró­sent. Þar af er þriðj­ungur mjög ánægð­ur. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eru ánægð­ari en kjós­endur flokka í stjórn­ar­and­stöð­unni. Ánægjan er minnst meðal þeirra sem ætla sér að kjósa Andra Snæ Magna­son sem for­seta í næstu kosn­ing­um. 

Könnun Mask­ínu fór fram dag­ana 10. til 13. maí 2016 og voru svar­endur 824 tals­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None