Samtök atvinnulífsins (SA) fyrir hönd Isavia og Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) undirrituðu kjarasamning í húsnæði ríkissáttasemjara á þriðja tímanum í nótt. Samningurinn er til ársloka 2018. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ríkissáttasemjara.
Kjarasamningurinn verður nú kynntur stjórn Isavia og félagsmönnum FÍF og hann borinn undir atkvæði. Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu mun liggja fyrir eigi síðar en 10. júlí, að því er segir í tilkynningu.