EM-draumur Íslands er úti eftir að íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði fyrir Frakklandi í átta liða úrslitum í Evrópumótinu í fótbolta í kvöld.
Íslenska liðið átti ekki roð í það franska, sem skoraði fimm mörk gegn tveimur mörkum Íslands.
Eftir stendur að íslenska landsliðið sló fjölmörg met og komst í sögubækurnar fyrir að komast í átta liða úrslit í fyrsta stórmótinu sem það keppti á.
Auglýsing