Endurheimtur á ólöglegri ríkisaðstoð viðvarandi vandamál

Íslensk stjórnvöld vissu að þau hefðu gerst brotleg með ívilnunarsamningum við fimm fyrirtæki en sinntu því ekki að endurheimta aðstoðina. Eftirlitsstofnun EFTA hefur áhyggjur af stöðu mála á Íslandi.

eftacourt-1.jpg
Auglýsing

End­ur­heimtur á ólög­mætri rík­is­að­stoð eru og hafa verið vanda­mál á Íslandi. Þetta segir Gjer­mund Mathies­en, yfir­maður sam­keppn­is­mála hjá ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, í sam­tali við Kjarn­ann. ESA hefur áhyggjur af stöðu mála í þessum mála­flokki hér á land­i. 

Líkt og Kjarn­inn greindi frá fyrir helgi var Ísland dæmt fyrir EFTA dóm­stólnum í síð­ustu viku fyrir að end­ur­heimta ekki ólög­mæta rík­is­að­stoð í tengslum við íviln­un­ar­samn­inga við fimm fyr­ir­tæki, Becrom­al, Ver­ne, Íslenska kís­il­fé­lag­ið, Thorsil og GMR end­ur­vinnsl una.

ESA hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu fyrir tveimur árum að samn­ing­arnir við þessi fyr­ir­tæki fælu allir í sér rík­is­að­stoð sem gengi gegn EES-­samn­ingnum og stjórn­völdum á Íslandi var fyr­ir­skipað að stöðva allar frek­ari greiðslur rík­is­að­stoðar og sjá til þess að öll aðstoðin sem hafði verið veitt fram að því yrði end­ur­greidd innan fjög­urra mán­aða. Íslensk stjórn­völd áttu einnig að til­kynna ESA hver heild­ar­fjár­hæðin af þess­ari rík­is­að­stoð væri og hvernig ætti að end­ur­heimta pen­ing­ana. 

Auglýsing

Íslensk stjórn­völd upp­fylltu ekk­ert af þessum skil­yrðum og því var ákveðið að fara með málið fyrir dóm. Dóm­ur­inn stað­festi nið­ur­stöðu ESA og brot Íslands og íslenska ríkið þarf því að greiða allan máls­kostn­að. 

Atvinnu­vega­ráðu­neytið gerði lítið úr dóm­inum í frétta­til­kynn­ingu sem það sendi frá sér um málið fyrir helgi. Þar kemur aðeins fram að EFTA dóm­stóll­inn hafi átalið drátt á end­ur­heimt og sagt að íslensk stjórn­völd hafi unnið að lausn máls­ins und­an­farna mán­uði í sam­ráði við umrædd fyr­ir­tæki. Stefnt sé að því að ljúka mál­unum á næstu vik­um. 

Mathiesen segir við Kjarn­ann að end­ur­heimtur hafi verið vanda­mál á Íslandi og að verið sé að vinna að lausn þessa vanda­máls í sam­starfi við íslensk stjórn­völd. Eft­ir­litssstofn­unin hafi hins vegar áhyggjur af því að ekki hafi verið brugð­ist fyrr við mál­inu. Sam­kvæmt því sem kemur fram í dómi EFTA dóm­stóls­ins gerðu íslensk stjórn­völd ekki athuga­semdir við ákvörðun ESA og vissu því að þau yrðu að hlíta þeirri ákvörð­un. Engu að síður hafi ekki verið aðhafst við að end­ur­heimta aðstoð­ina á réttum tíma, og að stjórn­völd hafi ekki lagt fram neinar sann­anir fyrir því fyrir dómi að samn­ing­arnir hafi verið ógildir eða að greiðslum til fyr­ir­tækj­anna hafi verið hætt. Þá hafi Ísland ekki sýnt fram á nákvæmar upp­hæðir sem ætti að end­ur­heimta né heldur hvernig stæði til að standa að end­ur­heimt­un­um. 

Íslensk stjórn­völd héldu því fram fyrir dómi að upp­hæð­irnar sem um ræðir séu mjög litl­ar. Mathiesen segir að upp­hæð­irnar hafi vissu­lega ekki verið mjög háar, en það veki einmitt upp áhyggjur af því hvað myndi ger­ast í stærri mál­um. „Myndi þá taka ennþá lengri tíma að end­ur­heimta rík­is­að­stoð­ina? Það er það sem við höfum miklar áhyggjur af.“ 

Mathiesen segir að ESA leggi áherslu á að ráð­ist verði í kerf­is­breyt­ingar á Íslandi til þess að breyta þessu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None