Offramboð á olíu veldur verðfalli á heimsmarkaði

Heimsmarkaðsverð á olíu er að lækka á ný eftir kúf síðustu vikna. Skýringin talin felast í offramboði. Lygnari verðsveiflur á Íslandi skýrast af opinberum gjöldum.

Offramboð á olíu getur, ásamt öðrum þáttum, valdið því að heimsmarkaðsverð á olíu lækkar.
Offramboð á olíu getur, ásamt öðrum þáttum, valdið því að heimsmarkaðsverð á olíu lækkar.
Auglýsing

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur ekki verið læra í um fjóra mán­uði. Tunna af Norð­ursjáv­ar­ol­íu, sem kölluð er Brent-­olía á mörk­uð­um, kost­aði 41,5 Banda­ríkja­dal við lokun mark­aða á föstu­dag. Það er þó langt frá því að vera lægsta verðið sem olía hefur farið á á þessu ári. Í jan­úar fór verð á tunnu af Norð­ursjáv­ar­olíu niður fyrir 30 doll­ara.

Síðan hefur verðið hækkað nokkuð og náði hámarki í júní. Eftir það hefur verðið lækkað og er skýr­ingin talin fel­ast í offram­boði olíu á mark­aði. Ástæða verð­hækk­un­ar­innar á öðrum árs­fjórð­ungi er einnig fela í sér ástæður þess að verðið falli nú. Í Kúveit var verk­fall olíu­iðn­að­ar­manna, fram­leiðsla minnk­aði mikið í Nígeríu og Líbíu og gróð­ur­eldar geisuðu við kanadísku tjöru­sandana.

Búist er við að olíu­verðið haldi áfram að lækka á næstu vik­um. Olíu­fram­leiðsla í Banda­ríkj­unum hafði minnkað hratt þar til á und­an­förnum vikum þegar fjöldi olíu­bora hefur auk­ist mikið og fram­leiðslan um leið. Þá er unnið að end­ur­opn­unum á olíu­bor­holum í Líbíu eftir átökin þar í landi og arab­íska vor­ið.

Auglýsing

Sam­tök olíu­fram­leiðslu­ríkja (OPEC) telja að olíu­fram­leiðsla ríkja sam­tak­anna hafi náð hámarki í júlí. Sádí-­Ar­ab­ía, langstærsti útflytj­andi hrá­olíu í heim­in­um, hefur fram­leitt nærri því jafn mikið og þegar mest hefur verið und­an­far­ið, Írakar dæla meiri olíu upp úr jörð­inni en nokkru sinni og Nígería fram­leiðir mikið þrátt fyrir óöld í land­inu. Í júní var fram­boðið á olíu­tunnum á dag 33,31 milljón tunnur og í júlí buð­ust 33,41 milljón tunnur á dag.

Sveiflur á olíu­verði á Íslandi hafa ekki verið eins miklar og á heims­mark­aðs­verð­inu und­an­farin tvö ár. Sé verð­þró­unin á bens­ín­lítr­anum hér landi borin saman við verð á Norð­ursjáv­ar­olíu sést að verð­sveifl­urnar hafa verið mun lygn­ari en dramat­ísku sveifl­urnar á heims­mark­aði. Und­an­farin eitt og hálft ár hefur gengi íslensku krón­unnar styrkst nokkuð gagn­vart Banda­ríkja­dal sem ætti einnig að hafa áhrif á bens­ín­verð hér á landi.

Lygn­ari sveiflur í olíu­verði hér landi miðað við heims­mark­aðs­verð skýr­ast einkum af því að í útsölu­verðið er að meiri­hluta skattar og opin­ber gjöld, sem sveifl­ast ekki með heims­mark­aðs­verði. Lítra­verð á bens­íni á Íslandi er nú um það bil 190 krón­ur, en það fór lægst í um 180 krónur í kjöl­far lægðar heims­mark­aðs­verðs­ins í febr­ú­ar. Fyrir ári síðan kost­aði lítr­inn af bens­íni um 220 krón­ur. Í byrjun ágúst árið 2014 kost­aði lítr­inn af bens­íni hins vegar rúmar 240 krón­ur.

Hrá­ol­íu­verð miðað við elds­neyt­is­verð á Íslandi og olíu­verð miðað við gengi krónu gagn­vart dollar

Þróun olíuverðs á Íslandi miðað við Brent-olíu og gengi dollars.

Heim­ild: oil.­lax­dal.org.

Ísland nýtur góðs af lágu olíu­­verði, í það minnsta þegar beinu áhrifin eru skoð­uð. Ef verðið er lágt, þá þarf minn­i gjald­eyri í að kaup olí­una heldur en þegar það er hátt. Óbeinu áhrifin eru ­síðan þau, að oft er fylgni milli verð­­sveiflna olí­unnar og síðan ann­­arra hrá­vara. Þannig skilar mikil lækkun á olíu­­verði sér oft í því, með tím­an­um, að verð ­lækkar á inn­­­fluttum afurð­u­m.  Það dreg­ur ­síðan úr verð­­bólgu. Verð­­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­­sent verð­­bólg­u­­mark­að­i und­an­farið ár, og mælist nú 1,1 pró­­sent á árs­grund­velli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None