Guðni fyrsti þjóðhöfðinginn til að ávarpa Hinsegin daga

Guðni ásamt Elizu Ried, Felix Bergsyni, Baldri Þórhallssyni, Örnu Dögg Einarsdóttur og Degi B. Eggertssyni.
Guðni ásamt Elizu Ried, Felix Bergsyni, Baldri Þórhallssyni, Örnu Dögg Einarsdóttur og Degi B. Eggertssyni.
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, varð fyrsti þjóð­höfð­ing­inn í heim­inum til að ávarpa Gleði­göng­una eða sam­bæri­legar hátíðir í dag. Guðni flutti ræðu við Arn­ar­hól á áfanga­stað Gleði­göng­unn­ar.

Í ræðu sinni sagð­ist Guðni ekki ætla að verða siða­post­uli né bylt­inga­sinni á for­seta­stóli og sagði að það væri ekk­ert stór­mál að hann flytti ræðu við þetta tæki­færi, jafn­vel þó mikið hafi verið látið með það. „Í raun hafa allir [hér] sama mál­stað til að verja, sama til­efni til að gleðj­ast. Frelsi og fram­far­ir, sam­staða, umburð­ar­lyndi og mann­rétt­indi. Þessi leið­ar­ljós eiga að skína skært í sam­fé­lagi fólks. Við fögnum hér frelsi. Ást­frelsi,“ sagði Guðni.

Á vefnum Gay Iceland.is er það full­yrt að Guðni hafi ekki aðeins orðið fyrsti íslenski for­set­inn til að ávarpa Gleði­göngu heldur fyrsti þjóð­höfð­ing­inn í heim­inum til að ávarpa opin­ber­lega sam­bæri­legar hátíðir í öllum heim­in­um. Guðni seg­ist í sam­tali við Gay Iceland hafa fylgst með Hinsegin dögum í mörg ár og séð Gleði­göng­una með fjöl­skyldu sinni. „Þetta er alltaf jafn gam­an,“ segir Guðni í sam­tal­inu sem fram fór á ensku.

Auglýsing

Í ræð­unni sagði Guðni einnig að þetta frelsi sem fagnað var í dag væri mik­ils virði. Hann þekkti það af eigin raun úr æsku hversu dýr­mætt og ein­stakt það væri að hafa frelsi til þess að hafa ekki áhyggjur af því hvað aðrir halda um mann, eða hvað aðrir halda um mann. Hann sagði sam­fé­lagið hafa farið í rétta átt og spurði hvort við værum kannski komin á áfanga­stað. „En þess­ari frels­is­bar­áttu lýkur í raun aldrei,“ svar­aði Guðni sjálf­ur.

„Ég vil sér­stak­lega hvetja alla til að taka á for­dómum sem enn þarf að glíma við í heimi íþrótt­anna. Á Íslandi hefur lesbía orðið for­sæt­is­ráð­herra. Von­andi fáum við bráðum homma í eitt­hvað okkar ágætu karla­lands­liða,“ sagði Guðni og end­aði svo ræð­una á því að benda á að kannski væru bara allir „hinseg­in“ því „þegar vel er að gáð þá er eng­inn eins og fólk er flest.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None