MS kærir úrskurð Samkeppniseftirlitsins – Heildarhagræði falið í sameingu og samstarfi

Ari Edwald
Auglýsing

Ari Edwald, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS), segir sam­ein­ingar og sam­starf á mark­aði með mjólk­ur­af­urðir hafa skilað í heild um 30 króna hag­ræð­ingu á lítra og sparað neyt­endur sam­tals um 2,5 millj­arða króna á ári. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Sam­keppn­is­eft­ir­litið úrskurð­aði í mark­aðs­mis­notkunn­ar­máli MS í byrjun júní og sektaði fyr­ir­tækið um 480 millj­ónir króna fyrir alvar­leg brot á sam­keppn­is­lög­um.

MS hefur kært úrskurð­inn til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. Ari seg­ist ein­fald­lega vera ósam­mála ýmsum full­yrð­ingum úrskurð­ar­ins og segir fyr­ir­tækið ekki hafa ástæðu til ann­ars en að „fara að réttum lög­um“ og að MS hafi engan hag af því að keppi­nautum á mark­aði með mjólk­ur­af­urðir fækki.

„MS er ekki rekið með hagn­að­ar­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi. Arð­sem­is­krafan sem við vinnum eftir væri ekki talin við­un­andi í almennum rekstri,“ segir Ari og segir að besta rekstrar á fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið árið 2007 þegar 250 millj­óna hagn­aður fékkst af rekstr­in­um. „Sú lagaum­gjörð sem við vinnum eftir var ekki sett til höf­uðs neyt­end­um, þvert á móti var hún sett í þeirra þágu. Það var verið að reyna að finna lausn á því verk­efni að koma vör­unni á markað með sem minnstum kostn­aði. Hugs­unin var að lækka verð til neyt­enda.“

Auglýsing

Í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er MS sagt hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­nautum hrá­mjólk til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum á óeðli­lega háu verði á sama tíma og MS og aðilar tengdir fyr­ir­tæk­inu fengu hrá­efni undir kostn­að­ar­verði.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS upp­­haf­­lega fyrir umrædd brot í sept­­em­ber 2014. Þá var sektin 370 millj­­ónir króna. Áfrýj­un­­­ar­­­nefnd sam­keppn­is­­­mála komst að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í des­em­ber 2014 að fella yrði úrskurð­inn úr gildi, vegna þess að MS upp­­­lýsti ekki eft­ir­litið um samn­ing á milli fyr­ir­tæk­is­ins og Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga, sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrá­­­mjólk á lægra verði. MS lagði samn­ing­inn ekki fram fyrr en við mál­­­flutn­ing fyrir áfrýj­un­­­ar­­­nefnd­inni, þrátt fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði ítrekað beðið um skýr­ingar og gögn frá fyr­ir­tæk­inu.

Ljóst er að sektin sem MS hefur nú kært mun hafa veru­­leg áhrif á rekstur MS, en fyr­ir­tækið tap­aði 330 millj­­ónum króna í fyrra. Það tap var til­­komið vegna þess að fram­­­leiðsla umfram mark­aðs­þarfir inn­­­an­lands var sjö til átta milljón lítr­­­ar. Þ.e. fram­­­leið­end­­­urn­ir, bænd­­­ur, fram­­­leiddu meiri mjólk en nauð­­­syn­­­legt var og MS þurfti að kaupa hana af þeim. 

Í við­tal­inu segir Ari afkomu bænda á upp­boðs­mark­aði með mjólk verða mun ótrygg­ari en í núver­andi skipu­lagi. MS hafi tekið á sig „miklar skuld­bind­ingar um að kaupa alla mjólk á sama verði af bædnum hvar sem er á land­inu og inn­heimta sama flutn­ings­kostn­að. Án þess lagaum­hverfis sem mjólkur­iðn­aður býr við myndi ekk­ert eitt sam­keppn­is­fyr­ir­tækj­anna taka að sér að sækja mjólk­ina á afskekkt­ustu bæina og greiða sama verð. Eða bjóða vörur um allt land á sama heild­sölu­verði. Afkoma bænda yrði miklu ótrygg­ari á þeim upp­boðs­mark­að­i.“ 

Að mati Ara mun það hafa mikil áhrif ef leið Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins verði farin í þessum efnum þá muni kúa­bú­skapur á Íslandi drag­ast saman um „ein­hverja tugi millj­óna lítra eða kannski um þriðj­ung frá því sem nú er.“ Slíkar breyt­ingar á kerf­inu eigi að ræða á Alþingi en ekki vera að frum­kvæði ein­staka stofn­anna eða stjórn­enda þeirra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None