Bankamenn „dæmdir af reiðu og örvæntingarfullu samfélagi“

Ingibjörg Kristjánsdóttir, eiginkona Ólafs Ólafssonar, segir mann sinn saklausan en samfélagið hafi þurft útrás fyrir reiði sína og því hafi hann og aðrir verið dæmdir í fangelsi.

Ólafur Ólafsson
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son fjár­festir var sak­laus dæmdur af reiðu og örvænt­ing­ar­fullu sam­fé­lagi, og dóms­kerfið fylgdi eftir dómum sam­fé­lags­ins „á kald­rifj­aðan og þaul­skipu­lagðan hátt.“ Þetta skrifar Ingi­björg Krist­jáns­dótt­ir, eig­in­kona Ólafs, í grein sem birt­ist á Vísi í dag

Ingi­björg skrifar meðal ann­ars um Kvía­bryggju, þar sem eig­in­maður hennar afplán­aði hluta dóms síns fyrir hlut sinn í Al Than­i-­mál­inu þar til fyrir skömmu. Hann er nú á Vernd. Hún skrifar um fang­ana sem þar eru og seg­ir: „Sumir hafa drýgt hrotta­lega glæpi, aðrir hafa ein­fald­lega orðið undir í líf­inu, og …enn aðrir eru þarna af því að sam­fé­lagið þurfti útrás fyrir reiði sína. 

Til­hugs­unin um að þarna inni sitji hugs­an­lega fleiri menn, sak­lausir eins og mað­ur­inn minn, dæmdir af reiðu og örvænt­ing­ar­fullu sam­fé­lagi er ekki góð,“ skrifar Ingi­björg. Sú stað­reynd að dómum sam­fé­lags­ins var síðan löngu seinna, á kald­rifj­aðan og þaul­skipu­lagðan hátt, fylgt eftir af stór­göll­uðu dóms­kerfi, rekið áfram af ann­ar­legum hags­munum dóm­ara sem eru virkir þáttak­endur og partur af þessu sam­fé­lagi, tengdir fjöl­skyldu- og vina­böndum þvers og krus­s….er heldur verri.“ 

Auglýsing

Hún segir að svo til allt sem eigi að vera heil­agt í nútíma­þjóð­fé­lagi, sem setji mann­rétt­indi ofar öllu, hafi verið van­virt eða hent fyrir róða í mál­inu gegn manni hennar og öðrum sem dæmdir voru. „Hug­tök eins og „sak­laus uns sekt er sönn­uð“ hafa ekk­ert gildi, „van­hæfi dóm­ara“ skiptir engu máli, „borg­ara­leg rétt­indi sak­born­inga“ eru fótum troð­in.“ 

Hún segir að dóm­urum sé gefið gíf­ur­legt vald til að svipta mann­eskju frels­inu. Dóm­arar þurfi að vera hafnir yfir allan vafa og heil­indi þeirra þurfi að vera ótví­ræð. „Svo er því miður ekki.“ 

Ingi­björg segir það sitt verk­efni að fyr­ir­gefa sam­fé­lag­inu dóm­hörk­una, og hún sé á góðri leið með það. „Ég mun hins vegar eiga erf­ið­ara með að fyr­ir­gefa kerf­inu, kaldrifj­uðum dóm­urum og emb­ætt­is­mönnum sem vernda sína menn út í hið óend­an­lega og metn­að­ar­lausum stjórn­mála­mönnum sem hafa ekki þor til að stíga fram og stoppa þessa aðför að sak­lausu fólki.“ 

Hún segir það verk­efni sam­fé­lags­ins að horfast í augu við það „hve hrapa­lega okkur hefur mis­tek­ist að gera upp efna­hags­hrunið á rétt­látan og heið­ar­legan máta. Norna­veiðar sam­tím­ans munu snú­ast uppí skömm morg­un­dags­ins.“ 

Ólafur Ólafs­­son hlaut fjög­­urra og hálfs árs fang­els­is­­dóm í Al Than­i-­­mál­inu svo­­kall­aða fyrr á þessu ári fyrir mark­aðs­mis­­­not­k­un. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None