Hæstiréttur Íslands hefur hafnað kröfu verjenda þriggja sakborninga í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings um að tveir hæstaréttardómarar víki sæti í málinu. Mbl.is greinir frá þessu.
Málið verður því tekið fyrir í Hæstarétti á föstudaginn.
Verjendur höfðu krafist þess að Þorgeir Örlygsson og Ingveldur Einarsdóttir vikju sæti. Þorgeir vegna þess að sonur hans væri yfirlögfræðingur Kaupþings ehf og hann hefði fjárhagslega hagsmuni af því að sakfellt yrði í málum gegn fyrrverandi stjórnendum og Ingveldur vegna þess að sonur hennar hafi starfað fyrir embætti sérstaks saksóknara á árunum 2011 til 2013.
Hæstiréttur sagði hins vegar að Kaupþing ehf. hafi ekki fjárhagslega hagsmuni af einkamálum sem rekin séu, þar sem Seðlabanki Íslands hafi gert það að skilyrði þegar Kaupþing sótti um undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Rétturinn segir að sonur Ingveldar hafi ekki sinnt málum sem vörðuðu Kaupþing í störfum sínum hjá sérstökum saksóknara.
Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Helgason, Einar Pálmi Sigmundsson, Birnir Sær Björnsson, Pétur Kristinn Guðmundsson og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings í héraðsdómi Reykjavíkur í júní í fyrra. Tveimur liðum ákæru á hendur Magnúsi Guðmundssyni var vísað frá en að öðru leyti var hann sýknaður af þeim sökum sem á hann voru bornar. Björk Þórarinsdóttir var einnig sýknuð í málinu af ákæru fyrir umboðssvik.
Hreiðari Má var ekki gerð frekari refsing, en hann afplánar nú þegar fimm og hálfs árs fangelsisdóm vegna Al Thani-málsins svokallaða. Sigurður Einarsson fékk eins árs hegningarauka við þann fjögurra ára dóm sem hann hlaut í Al Thani- málinu. Ingólfur Helgason hlaut þyngsta dóminn, fjögurra og hálfs árs fangelsi að frádregnu gæsluvarðhaldi sem hann sætti á sínum tíma. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi tveggja ára skilorðsbundinn dóm og Birnir Sær og Pétur Kristinn fengu báðir 18 mánaða skilorðsbundinn dóm.
Farið var fram á að refsirammi yrði fullnýttur
Í málinu var hinum ákærðu, sem eru alls níu talsins, gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hlutabréfa í Kaupþingi, frá hausti 2007 og fram að falli bankans haustið 2008, og aukið seljanleika þeirra með „kerfisbundnum“ og „stórfelldum“ kaupum, eins og segir í ákæru, í krafti fjárhagslegs styrks bankans. Stærð og umfang málsins á sér ekki hliðstæðu hér á landi. Aðalmeðferð þess tók 22 daga og yfir 50 manns voru kallaðir til sem vitni á meðan að hún stóð yfir.
Þau níu sem voru ákærð eru Sigurður Einarsson, fyrrum starfandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána, Einar Pálmi Sigmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eigin viðskipta Kaupþings, Pétur Freyr Guðmarsson, fyrrverandi starfsmaður eigin viðskipta, Birnir Sær Björnsson, fyrrverandi starfsmaður eigin viðskipta, og Björk Þórarinsdóttir, sem sæti átti í lánanefnd Kaupþings.
Við aðalmeðferð málsins fyrir héraðsdómi fór Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara sem flutti málið, fram á að refsiramminn fyrir markaðsmisnotkunarbrot yrði fullnýttur auk þess sem tekið yrði tillit til 72. greinar almennra hegningarlaga um aukna refsingu þegar héraðdómur fellir dóma yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Ingólfi Helgasyni í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. Það þýðir að embætti sérstaks saksóknara fór fram á að þeir myndu allir fá níu ára fangelsisdóma.