Frá undirritun kaupsamnings á Nova í síðustu viku.
Frá undirritun kaupsamnings á Nova í síðustu viku.
Auglýsing

Fjár­mála­fyr­ir­tækið Íslensk verð­bréf (ÍV) vinnur nú að því að ljúka samn­ingum við inn­lenda fjár­festa sem ætla sér að kaupa um þriðj­ungs­hlut í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova. Þeir ætla sér að leggja til um 2,5 millj­arða króna í kaupin en stór hluti þeirrar fjár­mögn­unar verður í gegnum fram­taks­sjóð á vegum ÍV. Frá þessu er greint í DV í dag.

Til­kynnt var um það síð­ast­lið­inn föstu­dag að Novator, fjár­­­fest­inga­­fé­lag Björg­­ólfs Thors Björg­­ólfs­­son­­ar, hefði náð sam­komu­lagi við banda­ríska eigna­­stýr­ing­­ar­­fyr­ir­tækið Pt Capi­­tal Advis­ors, um kaup á öllu hlutafé Nova. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var kaup­verðið nálægt 16 millj­örðum króna. 

Pt Capi­­tal Advis­ors er dótt­­ur­­fé­lag Pt Capital, og er með aðsetur í Anchorage í Alaska. Félagið leggur meg­in­á­herslu á fjár­­­fest­ingar á norð­­ur­slóð­um, en Nova er fyrsta fjár­­­fest­ing félags­­ins hér á landi. Í til­kynn­ingu vegna kaupa þeirra var ekki greint frá því að til stæði að selja þriðj­ung áfram til inn­lendra fjár­festa.

Auglýsing

Sett í sölu í vor

Greint var frá því í vor að Novator hefði sett fyr­ir­tækið í sölu­­ferli með hjálp fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Kviku banka. Þá sagði Ragn­hildur Sverr­is­dótt­ir, upp­­lýs­inga­­full­­trúi Novator, að heild­­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins væri ekki undir 15 millj­­örðum króna. Sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var kaup­verðið hærra en 15 millj­­arðar króna og nær 16 millj­örðum króna.

Novator átti 94% hlut í Nova en stjórn­­endur fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­­ars Liv Berg­þór­s­dóttir for­­stjóri, sex pró­­senta hlut. 

Nova er orðið það fjar­­­­skipta­­­­fyr­ir­tæki sem er með mest­a ­mark­aðs­hlut­­­­deild á far­síma­­­­mark­aði á Ísland­i. Þetta kemur fram í töl­fræð­i­­­­skýrslu ­Póst- og fjar­­­­skipta­­­­stofn­unar um stöð­una á fjar­­­­skipta­­­­mark­að­i í lok árs 2015. Alls eru 34 pró­­­­sent allra áskrifta á far­síma­­­­neti hjá Nova en 33,8 pró­­­­sent hjá Sím­an­­­­um. Voda­­­­fone er í þriðja sæti með­ 28,1 pró­­­­sent og 365, sem boðið hefur upp á fjar­­­­skipta­­­­þjón­­­­ustu með síma og inter­­­­neti frá haustinu 2013, er með 3,4 pró­­­­sent hlut­­­­deild.

Staðan á þessum mark­aði hefur breyst hratt á und­an­­­­förn­um ár­­­­um. Um mitt ár 2008, hálfu ári eftir að Nova hóf starf­­­semi, var Sím­inn með 56,6 pró­­­­sent mark­aðs­hlut­­­­deild á far­síma­­­­mark­aði og Voda­­­­fone með 36,4 pró­­­­sent. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­­­­deild ­fyr­ir­tækj­anna tveggja var því 93 pró­­­­sent. Nú er hún um 62 pró­­­­sent.

Með sterk­­­ustu stöð­una í notkun gagna­­­magns

Nova er með lang­­­­sterk­­­­ustu stöð­una þegar kemur að notkun gagna­­­­magns á far­síma­­­­net­i. ­Mark­aðs­hlut­­­­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði er 64,6 pró­­­­sent á meðan að Sím­inn er með 18,3 pró­­­­sent og Voda­­­­fone með 12,8 pró­­­­sent. Ein­ungis 4,1 pró­­­­sent af ­gagna­­­­magns­­­­notkun á far­síma­­­­neti í fyrra var á meðal við­­­­skipta­vina 365.

Þessi ­notkun segir þó ekki alla sög­una. Upp­­­i­­­­­staðan af gagna­­­­magns­­­­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­­­­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­­­­neti heima hjá sér og á vinn­u­­­­stöðum frekar en að not­­­­ast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­­­­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u. Alls eru 48,8 pró­­­­sent allra inter­­­­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­­­­um.

Nova hefur ekki selt inter­­­­net­­­­þjón­­­­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­­­­kerfi á und­an­­­­förnum árum. Á því varð breyt­ing í síð­­­­asta mán­uði þegar að fyr­ir­tæk­ið til­­­­kynnti að það ætl­­­­aði að hefja ljós­­­­leið­­­­ara­­­­þjón­ust­u.  Því mun sam­keppnin þar aukast til muna á næst­unni.

Aftur orð­inn á meðal rík­­­­­ustu manna heims

Björgólfur Thor er aftur orð­inn á meðal rík­­­­­­­­­ustu manna heims­, sam­­­­­kvæmt lista For­bes, en auð­æfi hans eru metin á 1,6 millj­­­­­arða Banda­­­­­ríkja­dala, eða sem nemur 208 millj­­­­­örðum króna. Björgólfur Thor er núm­er 1.121 á lista For­bes yfir rík­­­­­asta fólk heims­ins. Hann fór hæst í 249. sæti árið 2007. Eignir Björg­­­­­ólfs Thors eru meðal ann­­­­­ars í fjar­­­­­skipta­­­­­fé­lög­unum Play í Pól­landi og WOM í Chile, auk þess að eiga eign­­­­­ar­hluti í félög­unum Xantis Pharma og All­erg­an líkt og áður sagð­i. Björgólfur Thor var á barmi gjald­­­­­þrots eftir hrun fjár­­­­­­­­­mála­­­­­kerf­is­ins, og í per­­­­­són­u­­­­­legum ábyrgðum fyrir tug­millj­­­­­arða­skuld­um, en tókst að semja við kröf­u­hafa sína, halda eign­­­­­ar­hlutum í stórum fyr­ir­tækj­um, meðal ann­­­­­ars Act­­­­­a­vis, sem síðan hefur sam­ein­­­­­ast öðrum félögum og stækk­­­­­að, og þannig ná vopnum sínum á nýjan leik.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None