kauphöll
Auglýsing

Mark­aðsvirði hluta­bréfa í kaup­höll Íslands féll í gær, en ­mest var lækk­unin á bréfum Icelanda­ir, Mar­els og Öss­ur­ar, þriggja stærst­u ­fé­lag­anna í kaup­höll­inni.

Icelandair lækk­aði um 2,13 pró­sent, Marel um 1,76 pró­sent og Össur um 1,16 pró­sent. Mark­aðsvirði Icelandair er nú 125 millj­arðar króna, sam­kvæmt Keld­unni. Marel er næst verð­mætasta félagið í kaup­höll­inni, en mark­aðsvirði þess um þessar mundir er 179 millj­arðar króna.

Verð­mætasta félagið er Össur en mark­aðsvirði þess er 189 millj­arð­ar. Sam­an­lagt virði félaga í kaup­höll­inni er ríf­lega 950 millj­arðar króna og eiga líf­eyr­is­sjóðir lands­manna 40 til 50 pró­sent allra skráðra hluta­bréfa á mark­aði.

Auglýsing

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans á dög­unum á eru þessi ­þrjú félög þau verð­mæt­ustu í kaup­höll­inni, og þegar heildar eigið fé félag­anna er sam­an­tek­ið, þá nemur það 426,9 millj­örðum króna. Af því eru 160 millj­arð­ar­ frá Mar­el, Öss­uri og Icelanda­ir.

Styrk­ing krón­unnar vinnur ekki með þessum félögum þar sem þau eru með efna­hag í erlendri mynt. Icelandair og Össur í Banda­ríkja­dal en Marel í evr­um.

Gengi krón­unnar hefur styrkst umtals­vert að und­an­förnu. Evr­an ­kostar nú 126 krónur og Banda­ríkja­dalur 113 krón­ur. Fyrir ári var staðan sú að ­evran kost­aði 150 krónur en Banda­ríkja­dalur 136.

Pundið hefur síðan veikst mikið gagn­vart helst­u við­skipta­myntum eftir að almenn­ingur sam­þykkti útgöngu Bret­lands úr ­Evr­ópu­sam­band­inu í sum­ar. Pundið kostar nú 140 krónur en kost­aði 206 krón­ur ­fyrir rúm­lega ári síð­an.

Hluta­bréf í kaup­höll­inni hafa heldur lækkað að und­an­förn­u, ­sam­hliða styrk­ingu krón­unn­ar, þó ekki sé hægt að full­yrða um bein­t or­saka­sam­hengi þar á milli. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None