Framsóknarflokkurinn, með Sigurð Inga Jóhannsson formann og Lilju D. Alfreðsdóttur varaformann í broddi fylkingar, kynnti stefnumál sín í dag og lagði meðal annars áherslu að peningastefnan verði endurskoðuð.
Þá vill flokkurinn að Landspítalinn verði byggður upp á nýjum stað og að lámarkslífeyrir aldraðra verði 300 þúsund krónur og fylgi lágmarkslaunum á almennum vinnumarkaði.
Helstu atriði í kynningu flokksins á stefnumálum hans, fyrir kosningar 29. október næstkomandi, má sjá hér að neðan.
Áherslumál Framsóknar fyrir kosningar
Hagur millistéttarinnar verði bættur enn frekar; neðra skattþrep verði lækkað verulega og persónuafsláttur verður útgreiðanlegur
Peningastefnuna skal endurskoða, raunvextir á Íslandi þurfa að endurspegla breyttan efnahagslegan veruleika
Lágmarkslífeyrir aldraðra verði 300 þúsund krónur á mánuði og fylgi lágmarkslaunum á almennum vinnumarkaði
Byggður verður nýr Landspítali á nýjum stað og framlög til heilbrigðisstofnanna um allt land aukin
Tannlækningar aldraðra verða gjaldfrjálsar og hjúkrunarrýmum fjölgað um allt land
Taka skal upp komugjald á ferðamenn sem nýtt verður til innviða
Fæðingarorlof verði 12 mánuðir og greiðsluþak hækkað í 600 þúsund krónur, barnabætur hækkaðar og barnaföt verði án virðisaukaskatts
Hluta námslána verður breytt í styrk og sérstök áhersla lögð á að styrkja iðn- og verknám
Skoðað verði hvort beita megi skattaívilnunum til fyrirtækja og einstaklinga á efnahagslega veikum svæðum á landsbyggðinni
Unnið skal eftir sóknaráætlun í loftslagsmálum sem er að fullu fjármögnuð til næstu þriggja ára í samræmi við skuldbindingar Íslands í Parísarsamkomulaginu
Aðstoða ungt fólk með úrræðinu Fyrsta fasteign og öðrum aðgerðum í húsnæðismálum – leiguíbúðir og fjölgun námsmannaíbúða