Sjálfstæðisflokkur sigurvegari en stjórnin fallin

Sjálfstæðisflokkurinn fékk afgerandi besta kosningu í Alþingiskosningunum, en þegar þetta er skrifað er fylgi hans 29,5 prósent sem gefur honum 21 þingmann. Framsókn og Samfylkingin töpuðu miklu fylgi.

Bjarni
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur 29,5 pró­sent fylgi og 21 þing­mann, þegar þetta er ritað (3:54), og telst ótvíð­ræður sigu­veg­ari Alþing­is­kosn­ing­anna sé horft til heild­ar­fylgis flokk­anna. Vinstri græn bæta hins vegar við sig 5 þing­mönnum og Píratar 6.



Rík­is­stjórn Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, er fallin þar sem Fram­sókn er ekki með nema 11,4 pró­sent fylgi og 8 þing­menn. Til þess að fá meiri­hluta þurfa rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir að fá sam­tals 32 þing­menn, en sam­tals eru 63 þing­menn á Alþingi, en flokk­arnir ná 29 þing­menn. 

Vinstri græn eru með 16,2 pró­sent á lands­vísu og 11 þing­menn, Björt fram­tíð 7,4 pró­sent og fjóra þing­menn, Píratar 13,6 pró­sent og 9 þing­menn og Sam­fylk­ingin 6,1 pró­sent og fjóra þing­menn. Við­reisn, sem kemur ný inn á þing, er með 10,2 pró­sent fylgi og fengi sex þing­menn. 

Óhætt er að segja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin séu þeir tveir flokkar sem koma verst út úr kosn­ing­un­um. Í kosn­ing­unum 2013 var Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna með tæp­lega fjórð­ungs fylgi en Sam­fylk­ingin fékk í þeim kosn­ingum sína verstu kosn­ingu frá stofnun með ríf­lega 12 pró­sent fylgi. Útkoman er enn verri nú, en fylgið er nú 6,1 pró­sent. 

Auglýsing

Allt stefnir í að útkoma Fram­sókn­ar­flokks­ins verði sú versta í 100 ára sögu flokks­ins.

Fylgi flokkanna, eins og það stendur nú.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í spjalli for­manna flokks­ins í sjón­varps­sal að eðli­leg­ast væri að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leiddi næstu rík­is­stjórn, í ljósi kosn­ing­anna, en að öðru leyti gaf hann ekki neinar afger­andi yfir­lýs­ingar um hvernig hann vildi skipa næstu rík­is­stjórn. 

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, sagði skila­boð kosn­ing­anna vera þau að óskað væri eftir fjöl­breytni í stjórn­mál­un­um. Á það þyrfti að hlusta.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None