Kjararáð hefur ákveðið að hækka laun forseta Íslands, þingfararkaup alþingismanna og laun ráðherra. Hækkunin tekur gildi strax um mánaðamótin.
Samkvæmt úrskurði kjararáðs verða laun forseta Íslands 2.985.000 krónur á mánuði, þingfararkaup alþingismanna verður 1.101.194 krónur á mánuði, laun forsætisráðherra að meðtöldu þingfararkaupi verða 2.021.825 krónur á mánuði og laun annarra ráðherra að meðtöldu þingfararkaupi verða 1.826.273 krónur á mánuði. Laun forsætisráðherra voru áður tæplega 1,5 milljónir en laun forseta voru tæpar 2,5 milljónir.
Í kjararáði sitja Jónas Þór Guðmundsson, sem jafnframt er formaður, Óskar Bergsson, Hulda Árnadóttir, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Svanhildur Kaaber.
Frá þessu er greint á vef RÚV en úrskurðurinn hefur verið birtur á vef kjararáðs.
Í úrskurðarorðum segir meðal annars að mikilvægt sé að æðstu embættismenn séu fjárhagslega sjálfstæðir. „Afar mikilvægt er að þjóðkjörnir fulltrúar séu fjárhagslega sjálfstæðir og engum háðir. Störf þeirra eiga sér ekki skýra hliðstæðu á vinnumarkaði enda eru þeir kjörnir til starfa í almennum kosningum og þurfa að endurnýja umboð sitt að minnsta kosti á fjögurra ára fresti. Forseta Íslands, ráðherrum og þingmönnum hafa ekki verið ákvarðaðar sérstakar greiðslur fyrir vinnu utan hefðbundins dagvinnutíma, þrátt fyrir að störf þeirra fari að hluta til fram utan hans,“ segir í úrskurðinum.
Samkvæmt þessu hækka laun forsætisráðherra og laun forseta því um meira en hálfa milljón á mann á mánuði, að því er segir í frétt RÚV. Laun forsetans hækka frá og með 1. nóvember en laun alþingismanna og ráðherra frá og með 30. október.