Oddný Harðardóttir er hætt sem formaður Samfylkingarinnar. Logi Einarsson varaformaður tekur við tímabundið. Hún tilkynnti þetta á Bessastöðum rétt í þessu, að loknum fundi sínum með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Hún heldur áfram sem þingmaður.
„Ég tók við sem formaður á miklum erfiðleikatímum í Samfylkingunni, tæpum fimm mánuðum fyrir kosningar. Á þeim stutta tíma tókst ekki að snúa við erfiðri stöðu flokksins og niðurstaða kosninganna er mér mikil vonbrigði,“ sagði Oddný í yfirlýsingu sinni. „Samfylkingin náði ekki árangri í þessum kosningum, en það kemur dagur eftir þennan dag og við höldum áfram. Það er afar mikilvægt að það skapist friður innan flokksins svo hægt sé að byggja starfið upp að nýju.
Ég ætla að leggja mig alla fram við þá vinnu sem framundan er við að efla Samfylkinguna, því sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að rödd jafnaðarmanna heyrist kröftuglega í íslenskum stjórnmálum og á Alþingi. Afgerandi niðurstöður kosninganna kalla hins vegar á afgerandi viðbrögð. Ég hef því ákveðið að stíga til hliðar sem formaður Samfylkingarinnar.“
Oddný sagði einnig að það væri ljóst í ljósi stöðu Samfylkingarinnar að flokkurinn færi ekki í ríkisstjórn. Hann myndi hins vegar styðja öll góð mál og gæti hugsað sér að verja umbótastjórn falli. Þar með er orðið ljóst að ekkert verður af fimm flokka stjórn frá miðju og til vinstri, eins og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hafði lýst yfir áhuga á að leiða á fundi sínum með forsetanum fyrr í dag. Til að mynda fimm flokka stjórn þyrfti að taka inn Framsóknarflokkinn.