Píratar vilja styðja minnihlutastjórn VG, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar

7DM_0401_raw_1846.JPG
Auglýsing

Píratar eru til­búnir til þess að styðja minni­hluta­stjórn þriggja flokka, Við­reisn­ar, Vinstri grænna og Bjartrar fram­tíð­ar. Þetta kom fram í máli Birgittu Jóns­dótt­ur, Smára McCarthy og Ein­ars Brynj­ólfs­sonar eftir fund þeirra með for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­essyni, nú eftir hádeg­i. 

Úrslit kosn­ing­anna bera það með sér að verið er að kalla eftir meiri breidd í stjórn­skipan lands­ins en áður hefur þekkst, sagði Birgitta við blaða­menn fyrir utan Bessa­staði. Sú hug­mynd var rædd á þing­flokks­fundi Pírata í gær­kvöldi að flokk­ur­inn myndi verja minni­hluta­stjórn VG, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar falli. Skil­yrði fyrir því þyrfti að vera að Sam­fylk­ingin gerði slíkt hið sama, því ann­ars er ekki meiri­hlut­i. 

Þau segj­ast ekki gera kröfu um að sitja í rík­is­stjórn, fyrst og fremst flækju­stigs­ins vegna. Það væri flókið að ef for­menn fimm flokka myndu eiga sæti við rík­is­stjórn­ar­borð­ið. Þetta útspil væri því til þess fallið að skapa frið og stöð­ug­leika. 

Auglýsing

Fyrr í morgun fund­aði Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður VG, með for­set­an­um. Þar tjáði hún honum að hún vill mynda fimm flokka rík­­is­­stjórn frá miðju og til vinstri. Hún væri reið­u­­búin til að leiða slíka stjórn. 

„Við erum til­­­búin til að taka þátt í og jafn­­vel leiða fimm flokka stjórn frá miðju til vinstri...Þetta væri minn fyrsti kost­­ur, að mynda slíka stjórn,“ sagði Katrín við fjöl­miðla á Bessa­­stöðum eftir fund hennar með Guðna Th. Jóhann­essyni for­­seta Íslands. 

Bjarni Bene­dikts­­son, for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, og Bene­dikt Jóhann­es­­son, for­­maður Við­reisn­­­ar, hafa báðir lýst því yfir að þeir vilji fá stjórn­­­ar­­mynd­un­­ar­um­­boð­ið. Bjarni var fyrstur for­­manna til að hitta for­­set­ann á Bessa­­stöðum í morg­un. Hann sagði við fjöl­miðla eftir fund þeirra að hann væri bjart­­sýnn á að geta myndað þriggja flokka stjórn. Hann sagð­ist gera ráð fyrir því að heyra frá for­­set­­anum á næstu dög­­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None