Donald Trump kjörinn forseti Bandaríkjanna

Donald Trump
Auglýsing

Don­ald J. Trump hefur verið kjör­inn nýr for­seti Banda­ríkj­anna. Hill­ary Clinton hefur sett sig í sam­band við hann og lýst því yfir að bar­átt­unni um for­seta­stól­inn væri lok­ið. Trump hefði sigr­að. Trump ávarp­aði stuðn­ings­menn sína rétt í þessu. Þar sagði hann: „Mér hefur rétt í þessu borist sím­tal frá Clint­on. Hún óskaði okkur til ham­ingju með sig­ur­inn og ég óskaði henni og fjöl­skyldu hennar með mjög harða bar­átt­u.“ 

Nú sé tími fyrir Banda­ríkja­menn að sam­ein­ast og láta sárin gróa. Trump sagð­ist heita því gagn­vart hverjum ein­asta Banda­ríkja­manni að hann myndi verða for­seti þeirra allra. Þeir sem hefðu ekki stutt hann, og það hafi verið fjöl­margir, mættu eiga von á því að Trump myndi teygja sig til þeirra til að óska eftir leið­sögn um hvernig mætti sam­eina þjóð­ina. „Hinir gleymdu íbúar Banda­ríkj­anna, verða ekki gleymdir leng­ur.“ 

Trump sagð­ist ætla að byggja upp inn­viði þjóð­ar­innar og með því skapa millj­ónir starfa. Hann sagð­ist ætla að eiga í frá­bærum sam­skiptum við öll önnur lönd sem væru til­búin að eiga í frá­bærum sam­skiptum við Banda­rík­in. 

Auglýsing

Nið­ur­staðan er þvert á allar spár, sem gerðu ráð fyrir sigri Clint­on. Fljót­lega varð þó ljóst, þegar taln­ing atkvæða hóf­st, að Trump væri að fara að sigra í lyk­il­ríkjum sem fáir höfðu átt von á að hann myndi sigra í. 

Við­brögð fjár­mála­mark­aða við góðu gengi Don­alds Trump í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum voru á þá  að hluta­bréf hafa fallið í verði og gull hefur rokið upp, sam­kvæmt fréttum Bloomberg. Þetta eru mestu sveiflur sem sést hafa á mörk­uðum síðan Brex­it-­kosn­ingin fór fram í Bret­landi með þeim nið­ur­stöð­um, og breskur almenn­ingur kaus með útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None