Leiðtogar heimsins leggja áherslu á gott samstarf við Trump

Leiðtogar áhrifamestu þjóða heims sendu Donald Trump heillaóskir í morgun. Langflestir lögðu áherslu á áframhaldandi samstarf á alþjóðavísu.

Xi Jinping og Vladimir Pútin.
Xi Jinping og Vladimir Pútin.
Auglýsing

Helstu leið­togar alþjóða­stofn­ana og banda­lags­þjóða Banda­ríkj­anna hafa sent Don­ald Trump ham­ingju­óskir eftir að ljóst var að Trump verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Repúblikan­flokk­ur­inn hlaut einnig meiri­hluta í báðum þing­deildum banda­ríska þings­ins.

Nær allir þjóð­ar­leið­togar lögðu áherslu áfram­hald­andi sam­starf á alþjóða­vísu en Trump lagði meðal ann­ars áher­lsu á í kosn­igna­bar­áttu sinni að hann myndi rifta við­skipta­samn­ingum á alþjóða­vísu.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, sendi Trump heilla­óskir frá Brus­sel í morgun og seg­ist hlakka til að vinna með nýkjörnum for­seta. „Við stöndum frammi fyrir ögrandi nýju heims­ör­ygg­is­á­stand­i,“ sagði Stol­ten­berg og taldi til ofbeldi 21. ald­ar­inn­ar; ný form hern­að­ar, netárásir og hryðju­verkaógn.

Auglýsing

Trump lagði mikla áherslu á í kosn­inga­bar­áttu sinni að aðild­ar­ríki NATO myndu, í hans valda­tíð, leggja til þær fjár­hæðir sem þær hafa skuld­bundið sig til að greiða til NATO. Ísland er meðal aðild­ar­ríkja NATO og er þar minnsta aðild­ar­ríkið og eina ríkið sem hefur ekki her. Ísland er meðal þeirra landa sem hefur ekki greitt að fullu þær fjár­hæðir sem samn­ing­ur­inn utan um Atl­ants­hafs­banda­lagið gerir kröfu um.

Ljóst er að Stol­ten­berg leggur áherslu á að nýr leið­togi Banda­ríkj­anna fóstri NATO í stað þess að slíta það í sund­ur. „Banda­lagið okkar hefur stefnt saman helstu vina­þjóðum Banda­ríkj­anna á tímum friðar og ófriðar í nærri 70 ár. Sterkt Atl­ants­hafs­banda­lag er gott fyrir Banda­ríkin og gott fyrir Evr­ópu,“ skrifar hann.

Leið­togar öfga­hægr­is­ins í Frakk­landi voru meðal þeirra sem voru fyrstir til að óska Trump til ham­ingju. Marie Le Pen, leið­togi Front National, var ánægð með úrslitin og óskaði „frjálsri amer­ískri þjóð“ til ham­ingju á Twitt­er. Helsti ráð­gjafi Le Pen, Florian Phil­ippot, tví­taði: „Þeirra ver­öld er að hrynja, okkar ver­öld er að verða til.“



Leið­togar Bret­lands og Banda­ríkj­anna stæra sig oft af „sér­stöku sam­bandi“ þjóð­anna enda hafa þessi ríki verið afar traustir banda­menn á alþjóða­svið­inu síðan í seinni heim­styrj­öld­inni. Þar ráða ekki síst efna­hags­legir hags­munir ferð­inni. Kosn­inga­bar­átta Brex­it-liða gekk til dæmis ekki síst um að Bret­land myndi líta enn frekar vestur yfir Atl­ants­hafið frekar en austur yfir Erma­sundið í efna­hags­legum skiln­ingi.

Ther­esa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sendi Don­ald Trump ham­ingju­óskir í morgun og fagn­aði hinu „sér­staka sam­bandi“ Bret­lands og Banda­ríkj­anna; sam­eig­in­legum gildum um „frelsi, lýð­ræði og einka­fram­tak“. May hafði áður gagn­rýnt kosn­inga­bar­áttu Don­alds Trump.

Margir leið­togar Íhalds­flokks­ins – flokks Ther­esu May – hafa hins vegar lýst yfir áhyggjum sínum af utan­rík­is­stefnu Trump. Breska blaðið The Independent greinir frá því að ein­hverjir hafi kallað utan­rík­is­stefnu nýrra stjórn­valda „skelfi­lega yfir­borðs­kennda“. Einn ráð­herra í rík­is­stjórn May lét hafa eftir sér: „Spurn­ingin er hvort hann hafi nokkra hug­mynd um ástandið í Mið-Aust­ur­lönd­um. Mun hann taka afstöðu til útþenslu ísra­el­skra land­nema­byggða, svo dæmi sé tek­ið. Hann veit eflaust ekk­ert um það.“

Nigel Fara­ge, helsti tals­maður Brexit og leið­togi UKIP-­flokks­ins í Bret­landi, kallar kjör Don­alds Trump bylt­ingu í Banda­ríkj­unum á sama hátt og Brex­it-­at­kvæða­greiðslan var bylt­ing í Evr­ópu­sam­band­inu. Farage er sagður vera á leið til Banda­ríkj­anna til fundar við Trump.

Frá Rúss­landi barst skeyti frá Vla­dimir Pútín til kosn­inga­vígis Don­alds Trump. Pútín óskar nýjum for­seta vel­gengni í nýju starfi og lagði áherslu á að end­ur­reisn sam­bands Rúss­lands og Banda­ríkj­anna væri mik­il­vægt, ekki aðeins fyrir þessi tvö lönd heldur heim­inn all­an. Hann sagð­ist vona að kjör Trump myndi leiða til upp­byggi­legrar sam­ræðu milli Moskvu og Was­hington sem byggi á jafn­ræði og virð­ingu.

Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa boðið Trump til fundar við sig. Don­ald Tusk, for­seti Evr­ópu­þings­ins, og Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, vilja funda með honum um mál­efni Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins. „Í dag er mik­il­væg­ara en nokkru sinni fyrr að styrkja tengslin yfir Atl­ants­haf­ið,“ skrifa þeir í bréfi til Trump.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None