Svandís Svavarsdóttir hefur verið þingmaður síðan 2009.
Svandís Svavarsdóttir hefur verið þingmaður síðan 2009.
Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, viðr­aði hug­mynd um að skipað yrði í þing­nefndir til bráða­birgða til þess að hægt væri að hefja umræður og efn­is­lega með­ferð fjár­laga í Alþingi. Hún var gestur Viku­lokanna á Rás 1 í dag ásamt Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, nýkjör­ins þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Pawel Bar­toszek, nýkjör­ins þing­manns Við­reisn­ar.

Fjár­laga­frum­varpið bíður með­ferðar úr ráðu­neyt­inu og þarf þingið að ganga fjár­lögum áður en þingi er slitið fyrir jól. Nú þegar ekki hefur verið mynduð rík­is­stjórn er það orðið álita­mál hvort sá tími sem verður til stefnu, þegar þing verður kallað saman eftir rík­is­stjórn­ar­mynd­un, dugi til þess að afgreiða fjár­laga­frum­varpið með sóma.

Ekki er aug­ljóst að við­ræður þeirra flokka sem nú ræða hugs­an­legt meiri­hluta­sam­starf muni skila árangri. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að það muni eflaust skýr­ast strax eftir helgi hvort þetta sam­starf verði að veru­leika. Ann­ars hafa flokk­arnir þrír (Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Við­reisn og Björt fram­tíð) gefið sér um það bil viku til við­ræðn­anna.

Auglýsing

Þau Áslaug Arna og Pawel sögðu, þegar sú spurn­ingin um hugs­an­legt „bráða­birgða­þing“ var borin undir þau, að það væri ekki tíma­bært að velta slíku fyrir sér strax. Heldur ætti þing­heimur að fylgj­ast með gangi form­legra stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna. Ef þær við­ræður drag­ist á lang­inn eða ef útlit er fyrir að Bjarna tak­ist ekki að nýta stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð sitt þá mætti fara að huga að bráða­birgða­lausn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None