Hlín Einarsdóttir játaði brot sín í tengslum við tilraun til að kúga fé út úr þáverandi forsætisráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, við þingfestingu málsins í héraðsdómi í dag. Malín Brand, systir hennar, játaði hlutdeild í brotinu en neitaði samverknaði. Þetta kemur fram á mbl.is.
Systurnar neituðu báðar sök í öðru máli þar sem þær eru ákærðar fyrir fjárkúgun gegn fyrrverandi samstarfsmanni Hlínar. Hlín sagðist vera saklaus af þeim lið eins og hann væri settur fram. Fram kemur í ákærunni gegn þeim að þær hafi haft 700 þúsund krónur af manninum með hótunum um að Hlín myndi leggja fram kæru hjá lögreglu fyrir nauðgun ef hann greiddi þeim ekki. Malín ræddi við manninn nokkrum sinnum og hún tók við peningunum í tvennu lagi.
Systurnar voru handteknar í aðgerðum lögreglunnar í byrjun júní í fyrra, en þær höfðu, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu, sent bréf heim til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráðherra, og krafist þess að hann greiddi þeim tiltekna upphæð. Í ákærunni kemur fram að bréfin hafi verið tvö, hið fyrra var sent til aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs, Jóhannesar Þórs Skúlasonar, og innihélt hótun um að birtar yrðu opinberlega upplýsingar um afskipti Sigmundar Davíðs af fjárhagsmálefnum Vefpressunar ehf., fjölmiðlasamsteypu undir stjórn Björns Inga Hrafnssonar, fyrrverandi unnusta Hlínar. Til að komast hjá því yrði Sigmundur Davíð að greiða 7,5 milljónir króna og afhenda þær þriðjudaginn 25. maí í fyrra. Ekki kom hins vegar fram í þessu bréfi hvar afhenda ættið féð, og bréfið var ekki opnað fyrr en 1. júní, eftir að systurnar höfðu verið handteknar.
Í millitíðinni hafði Hlín póstlagt annað bréf til Sigmundar Davíðs, en stílað á eiginkonu hans, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur. Í seinna bréfinu var búið að hækka fjárhæðina í átta milljónir króna og með því fylgdu „fyrirmæli um afhendingarmáta, gps-hnit og ljósmyndir af afhendingarstaðnum, sem var við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði,“ að því er segir í ákærunni á hendur systrunum. Bréfið barst á heimili þáverandi forsætisráðherra þann 28. maí í fyrra, og degi síðar voru systurnar handteknar við Krýsuvíkurveg, eftir að þær höfðu sótt pakkningu í tösku sem þær töldu innihalda umkrafða greiðslu. Fram kemur í ákærunni að Hlín hafi ritað bréfin en Malín prentað þau út.
Í tilkynningu lögreglunnar í fyrra kom jafnframt fram að þær hefðu játað við yfirheyrslu að hafa sent bréfið heim til þáverandi forsætisráðherra.
Það var svo í kjölfar þess að tilraunin til fjárkúgunar gegn forsætisráðherra komst í hámæli sem hinn maðurinn kærði systurnar til lögreglu, og Hlín lagði fram kæru á hendur manninum fyrir nauðgun.