Sveinn Arason ríkisendurskoðandi annast ekki eftirlit með Lindarhvoli ehf., eignarhaldsfélagi í eigu ríkisins sem fer með stöðugleikaeignir þess. Ástæðan er sú að Þórhallur Arason, bróðir Sveins, er stjórnarformaður Lindarhvols. Þórhallur er skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og situr fyrir hönd þess í stjórn félagsins. Frá þessu er greint í tilkynningu á heimasíðu Ríkisendurskoðunar.
Sala á eignum Lindarhvolshefur verið mikið í umræðunni að undanförnu, og sérstaklega sala félagsins á hlut ríkisins í Klakka, áður Exista, til bandarísks vogunarsjóðs fyrir skemmstu. Ásakanir hafa verið um brotalamir í söluferlinu og því haldið fram af öðrum bjóðendum að trúnaðargögnum hafi mögulega verið lekið til þess sem fékk að kaupa hlutinn. Í Viðskiptablaðinu í dag er greint frá því að forsvarsmenn félagsins Frigus II, sem bauð í hlutinn, hafi sent Fjármálaeftirlitinu bréf og krafist þess að salan á bréfunum í Klakka verði stöðvuð.
Í tilkynningu ríkisendurskoðunar segir að Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi, hafi verið hinn 19. september settur ríkisendurskoðandi til að annars endurskoðun Lindarhvols. „Eftir að fjármála- og efnahagsráðherra kynnti ákvörðun sína um að tilnefna bróður ríkisendurskoðanda, Þórhall Arason, í stjórn Lindarhvols ehf. ritaði ríkisendurskoðandi fjármála- og efnahagsráðuneytinu bréf þann 28. apríl þar sem hann vakti athygli á tengslum sínum við Þórhall. Í bréfinu var bent á að þessi tengsl hefðu í för með sér vanhæfi ríkisendurskoðanda til þess að hafa eftirlit með framkvæmd samnings Lindarhvols og fjármálaráðherra, líkt og lög mæltu fyrir um. Jafnframt ritaði ríkisendurskoðandi forseta Alþingis bréf þann 12. maí þar sem hann lýsti sig vanhæfan af þessum sökum til að annast lögboðið eftirlit með Lindarhvoli ehf.
Með hliðsjón af framansögðu setti forseti Alþingis Sigurð Þórðarson sem seturíkisendurskoðanda til að annast endurskoðun Lindarhvols ehf. og lögboðið eftirlit Ríkisendurskoðunar með samningi Fjármála- og efnahagsráðherra og Lindarhvols ehf. um sölu eigna sem ríkissjóður fékk sem stögugleikaframlag skv. nauðasamningum gömlu bankanna.“