Unnu verðmat eftir að hafa reynt að selja hlut sinn í Borgun

Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, var á meðal þeirra sem keyptu hlut Landsbankans í fyrirtækinu. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, bar ábyrgð á sölunni.
Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, var á meðal þeirra sem keyptu hlut Landsbankans í fyrirtækinu. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, bar ábyrgð á sölunni.
Auglýsing

Lands­bank­inn lét vinna verð­mat á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun í sept­em­ber 2014, nokkrum mán­uðum eftir að banka­stjóri hans lagði til að hlut­ur­inn yrði seldur til Íslands­banka á ákveðnu verði. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag þar sem áfram er greint frá drögum að skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um eigna­sölu Lands­bank­ans. 

Þar segir að í apríl 2014 hafi fjár­fest­inga­hópur boðið í hlut­inn. Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, sendi í kjöl­farið tölvu­póst á annan stjórn­anda innan bank­ans þar sem hann lagði til að Íslands­banki, sem átti líka hlut í Borg­un, yrði boð­inn hlut­ur­inn til sölu á sama verði og fjár­festa­hóp­ur­inn bauð í hlut­inn. Hann lagði þó áherslu á að banka­ráð yrði að sam­þykkja til­lög­una. 

Í skýrslu­drög­unum segir Rík­is­end­ur­skoðun að ekki sé hægt að sjá annað en að Lands­bank­inn hafi verið búinn að ákveða um miðjan apríl 2014 að selja eign­ar­hlut sinn í Borg­un. Umhugs­un­ar­vert sé hvað valdi því að Lands­bank­inn hafi látið vinna verð­mat á hlutnum í sept­em­ber, mörgum mán­uðum eftir að hann lýsti sig reiðu­bú­inn til að selja hlut­inn á til­teknu verði. Eðli­legra hefði verið að verð­meta hlut­inn áður en til­laga var lögð fram um að selja hann til Íslands­banka í apríl 2014. 

Auglýsing

Gleymdi að spyrja

Eins og Kjarn­inn hefur ítrekað fjallað um var 31,2 pró­­­senta hlutur í Borgun seldur bak við luktar dyr til val­inna fjár­­­­­festa, meðal ann­­­ars stjórn­­­enda Borg­un­­­ar, undir lok árs­ins 2014. Hlut­­­ur­inn var seldur á 2,2 millj­­­arða króna og heild­­­ar­virði félags­­­ins var metið á um sjö millj­­­arða. Í febr­­­úar var virði fyr­ir­tæk­is­ins talið allt að 26 millj­­­arðar króna. Eftir á hefur komið í ljós að Borgun ætti rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe, sem síðar gerð­ist. Lands­­­bank­inn hefur sagt að hann hafi ekki verið upp­­­lýstur um þennan val­rétt. Því hefur Borgun hins vegar vísað á bug.

Borgun fékk greitt fyrir hlut sinn í Visa Europe í sum­ar. Greiðslan barst í formi reiðu­fjár og var hærri en þeir 4,6 millj­arðar króna sem upp­haf­lega var búist við að fá. Ástæðan er sú að fallið var frá afkomu­tengdri greiðslu.

Morg­un­blaðið greindi frá því gær að á fund­um sem banka­­­stjóri Lands­­­bank­ans átti með Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun í ág­úst og sept­­­em­ber féllst banka­­­stjór­inn á að lík­­­­­ast til hefði bank­inn gleymt að spyrja for­svar­s­­­menn greiðslu­korta­­­fyr­ir­tæk­is­ins Borg­un­ar út í aðild þess að Visa Europe, þegar bank­inn seldi 31,2  pró­sent hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu í árs­­­lok 2014. 

Mikil gagn­rýni

Banka­ráð Lands­­­bank­ans hefur ákveðið að höfða mál fyrir dóm­stólum vegna söl­unnar á eign­­­ar­hlut bank­ans í Borg­un. Það er mat banka­ráðs að bank­inn hafi farið á mis við fjár­­­muni í við­­­skipt­unum þar sem bank­­­anum voru ekki veittar nauð­­­syn­­­legar upp­­­lýs­ing­­­ar.

Bæði Bjarni Bene­dikts­­son, for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, og Sig­­mundur Davíð Gunn­laugs­­son, þáver­andi for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, gagn­rýndu söl­una opin­ber­­lega eftir að greint var frá því hvernig að henni var stað­ið. Sig­­mundur Davíð sagði málið klúður og undir það tók Bjarni, sem sagð­ist einnig styðja að rann­­sókn færi fram á því hvernig að mál­inu var stað­ið. Fimm af sjö banka­ráðs­­mönnum Lands­­bank­ans sögðu af sér eftir gagn­rýn­ina, meðal ann­­ars frá Banka­­sýslu rík­­is­ins. 

Íslenska ríkið er lang­­­sam­­­lega stærsti eig­andi Lands­­­bank­ans með um 98 pró­­­sent hlut. Tryggvi Páls­­­son, for­­­maður banka­ráðs Lands­­­bank­ans, sagði í ræðu sinni á aðal­­­fundi Lands­­­bank­ans í fyrra að betra hefði verið að aug­lýsa hlut­inn til sölu, og selja hann þannig í opnu og gagn­­­sæju ferli. Þá voru einnig sterkar vís­bend­ingar um það að verðið hefði verið í lægri kant­inum miðað við hefð­bundna mæli­kvarða verð­mata á sam­­­bæri­­­legum fyr­ir­tækj­­­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None