Samkomulag sem Seðlabanki Íslands gerði við erlend tryggingarfélög haustið 2014 er fallið úr gildi þar sem losun hafta hefur gert það óþarft, en tekið var fram í samkomulaginu í upphafi að það myndi gilda svo lengi sem fjármagnshöft væru lögbundin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.
Haustið 2014 gerði Seðlabanki Íslands samkomulag við erlend tryggingafélög um tryggingasamninga sem fela í sér sparnað erlendis. Samkomulagið gerði félögunum kleift að viðhalda óbreyttu samningssambandi við viðskiptavini sína hér á landi án þess að það hefði neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð Íslands.
Þá var markmiðið með samkomulaginu enn fremur að stuðla að jafnræði meðal aðila á sama markaði, segir í tilkynningu Seðlabankans.
Nú hefur verið losað um fjármagnshöftin, sem var ástæða samkomulagsins 2014, og fellur samkomulagið við erlendu tryggingafélögin því úr gildi. Seðlabankinn hefur heimilað erlendu tryggingafélögunum að flytja úr landi innstæður sem þau höfðu byggt upp í Seðlabankanum á grundvelli samkomulagsins, samtals að fjárhæð 13,5 milljónir evra, eða sem nemur 1,6 milljörðum króna miðað við núverandi gengi.