Bretar þurfa að taka 122 milljarða punda aukalega að láni

Philip Hammond í Kína
Auglýsing

Áhrifin af útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu munu verða til þess að stjórn­völd þurfa að taka 122 millj­arða punda meira að láni á kjör­tíma­bil­inu en til stóð. Þetta til­kynnti Philip Hamm­ond, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, í dag. Guar­dian greinir frá.

Hann sagði engu að síður að efna­hagur Bret­lands stæði sterkum fótum eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um útgöng­una úr ESB fyrir nákvæm­lega fimm mán­uðum síð­an, en við­ur­kenndi að hægj­ast myndi tölu­vert á hag­vexti á næsta ári, vegna minni fjár­fest­inga og minni einka­neyslu vegna hækk­andi fram­færslu­kostn­að­ar. 

Hamm­ond sagði að stjórn­völd þyrftu að ráð­ast í meiri vinnu til þess að útrýma fjár­laga­halla. Áður hafði for­veri hans í starfi, George Osborne, stefnt á að í lok þessa kjör­tíma­bils yrði afgangur á fjár­lög­um. Þetta er ekki lengur mark­miðið hjá stjórn­völd­um, sem telja þá að ekki verði hægt að ná þessum áfanga í rík­is­fjár­mál­unum fyrir árið 2020, þegar kjör­tíma­bil­inu lýk­ur. Á móti ætlar Hamm­ond að stefna á að lán­tökur rík­is­ins verði undir tveimur pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu undir lok kjör­tíma­bil­is­ins og lækka nettó skuldir rík­is­ins á sama tíma. 

Auglýsing

Hag­vöxtur á þessu ári verður 2,1% sam­kvæmt nýrri spá, en ekki 2% eins og spáð hafði verið í mars. Hins vegar hefur spáin fyrir næsta ár verið lækkuð úr 2,2% hag­vexti niður í 1,4%. „Þetta er hæg­ara auð­vitað en við vildum óska, en engu að síður sam­bæri­legt við spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins fyrir Þýska­land, og hærra en spá um vöxt í mörgum nágranna­ríkjum okkar í Evr­ópu, þar á meðal Frakk­landi og Ítal­íu,“ sagði Hamm­ond. Hæg­ari hag­vöxtur myndi aftur á móti hafa áhrif á rík­is­fjár­mála­á­ætl­anir stjórn­valda og valda því að ríkið þurfi að taka miklu hærri lán en áður var áætl­að. 

Nú er gert ráð fyrir því að ríkið þurfi að taka 68,2 millj­arða punda að láni á þessu ári, en ekki 55,5 millj­arða eins og áður var talið. Á næstu fimm árum mun auk­inn lána­kostn­aður rík­is­ins nema 122 millj­örðum punda meira en gert var ráð fyrir í spánni áður en Bret­land ákvað að yfir­gefa Evr­ópu­sam­band­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None