Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri-grænna, munu funda á Bessastöðum klukkan 10 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu. Að þeim fundi loknum mun Guðni ræða við fjölmiðla.
Katrín hefur haft stjórnarmyndunarumboð í rúma viku, en á miðvikudaginn fóru viðræður flokks hennar, Samfylkingar, Pírata, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar út um þúfur.