Bændasamtök Íslands (BÍ) fordæma illa meðferð á dýrum og segja að það valdið vonbrigðum að heyra af slæmum aðbúnaði varphænsna hjá eggjaframleiðandanum Brúneggjum ehf. á síðustu árum. „Undir yfirskini vistvænnar framleiðslu, þar sem fólki er talin trú um að velferð varphænsnanna sé tryggð, virðast neytendur hafa verið blekktir um árabil. Þetta er óafsakanlegt og er harmað.[...]Þær myndir sem birtust landsmönnum í Kastljósþættinum í gærkvöldi voru sláandi og bera búskapnum á viðkomandi eggjabúum slæmt vitni. Bændasamtökin telja að málið sé fordæmalaust og hér sé um einstakt tilvik að ræða eins og fram kom í viðtali við forstjóra Matvælastofnunar í Kastljósþættinum.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum sem Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, skrifar undir.
Í Kastljós-þætti sem sýndur var í gærkvöldi var fjallað var um fordæmalaus afskipti Matvælastofnunar af eggjabúum Brúneggja. Í þættinum kom fram að Brúnegg hefði, að mati stofnunarinnar, blekkt neytendur árum saman með því að notast við merkingar sem héldu því fram að eggjaframleiðsla fyrirtækisins væri vistvæn og að varphænur þess væru frjálsar. Í krafti þess kostuðu eggin um 40 prósent meira en þau egg sem flögguðu ekki slíkri vottun.
Kastljós fékk aðgang að gögnum um afskipti Matvælastofnunnar af Brúneggjum og í þeim kom í ljós að stofnunin hefur í tæpan áratug haft upplýsingar um að Brúnegg uppfyllti ekki skilyrði sem sett voru fyrir því að merkja vörur sem vistvænar. Það væri því að blekkja neytendur. Atvinnuvegaráðuneytið hafði líka þessar upplýsingar, en neytendum var ekki greint frá þeim.
Fyrir ári síðan hafi staðið til að taka yfir vörslu á hænum Brúneggja vegna ítrekaðra brota á lögum um meðferð dýra, meðal annars með því að vera með allt of marga fugla í eggjahúsum. Til að koma í veg fyrir vörslusviptinguna þurftu Brúnegg að slátra um 14 þúsund fuglum.
Fjórar verslanakeðjur, þar á meðal tvær stærstu lágvöruverslanakeðjur landsins, hafa ákveðið að hætta að selja vörur Brúneggja í kjölfar umfjöllunarinnar.
Yfirlýsing Bændasamtaka Íslands í heild:
Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var fjallað um málefni eggjaframleiðandans Brúneggja ehf. Þar kom meðal annars fram að fyrirtækið hefur ekki sinnt aðfinnslum Matvælastofnunar með fullnægjandi hætti vegna athugasemda um aðbúnað dýra. Skort hefur á viðeigandi ráðstafanir til að mæta kröfum sem gerðar eru til eggjaframleiðenda. Auk þess hefur Brúnegg ehf. notað merki vistvæns landbúnaðar þrátt fyrir að reglugerð um merkið hafi verið numin úr gildi fyrir rúmu ári síðan.
Bændasamtök Íslands fordæma illa meðferð á dýrum enda hafa samtökin ávallt lagt áherslu á að íslenskur landbúnaður sé til fyrirmyndar hvað varðar dýravelferð og góðan aðbúnað. Það veldur vonbrigðum að heyra af slæmum aðbúnaði varphænsna hjá eggjaframleiðandanum Brúneggjum ehf. á síðustu árum. Undir yfirskini vistvænnar framleiðslu, þar sem fólki er talin trú um að velferð varphænsnanna sé tryggð, virðast neytendur hafa verið blekktir um árabil. Þetta er óafsakanlegt og er harmað.
Ný lög um velferð dýra tóku gildi í ársbyrjun 2014. Í þeim eru mjög framsæknar reglur um velferð dýra og fylgja innleiðingu þeirra miklar áskoranir fyrir landbúnaðinn. Lögin og reglugerðir sem á þeim byggja gera ríkari kröfur til aðbúnaðar búfjár en áður hefur tíðkast. Markmiðið er að tryggja velferð og heilbrigði dýra með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði.
Bændasamtökin hafa áður lýst yfir mikilvægi þess að eftirlit sé gott með þeim sem stunda landbúnað og matvælaframleiðslu og farið sé eftir lögum og reglum í hvívetna. Matvælastofnun hefur á síðustu árum þróað eftirlitskerfi og hefur fleiri úrræði en áður til þess að bregðast við slæmri meðhöndlun dýra. Hlutverk stofnunarinnar er að gæta þess að mál líkt og fjallað var um í Kastljósinu komi ekki upp. Það vekur upp spurningar af hverju mál geta velkst um í kerfinu jafnvel um árabil og lítið sé aðhafst. Mikilvægt er að tryggja að mál sem þetta endurtaki sig ekki.
Reglugerð um vistvæna framleiðslu var felld brott 1. nóvember 2015. Var það gert að tillögu starfshóps á vegum ráðuneytisins, sem Bændasamtökin áttu m.a. fulltrúa í. Þetta starf og niðurstaða þess var kynnt aðildarfélögum BÍ á sínum tíma.
Þær myndir sem birtust landsmönnum í Kastljósþættinum í gærkvöldi voru sláandi og bera búskapnum á viðkomandi eggjabúum slæmt vitni. Bændasamtökin telja að málið sé fordæmalaust og hér sé um einstakt tilvik að ræða eins og fram kom í viðtali við forstjóra Matvælastofnunar í Kastljósþættinum.
Virðingarfyllst, Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ.