Formaður slitastjórnar Glitnis hafði aldrei séð Markúsar-gögnin

Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómari við þingsetningu í dag.
Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómari við þingsetningu í dag.
Auglýsing

Stein­unn Guð­bjarts­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­maður slita­stjórnar Glitn­is, segir það af og frá að gögn sem sýndu við­skipti Mark­úsar Sig­ur­björns­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara með hluta­bréf í Glitni hafi komið frá slita­stjórn­inni. „Þetta kemur ekki frá okk­ur. Ég hef aldrei séð þessi gögn.“ Í frétt á Vísi í gær sagði að gögnin væru frá slita­stjórn Glitnis og sú full­yrð­ing var end­ur­tekin í frétt um málið í frétta­tíma Stöðvar 2 um kvöld­ið.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans voru gögn um við­skipti Mark­úsar aldrei hluti af þeim málum sem rann­sökuð hafa verið af emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, áður sér­staks sak­sókn­ara, vegna gjörn­inga sem áttu sér stað innan Glitn­is. Því eru gögnin ekki komin þaðan heldur né eru þau hluti af máls­gögnun sem lögð hafa verið fram í saka­málum sem höfðuð hafa verið vegna þeirra rann­sókna.

Greint var frá því í gær í fréttum Stöðvar 2 og í Kast­ljósi að Markús hefði átt hluta­bréf í Glitni fyrir hrun og síðar fjár­fest um 60 millj­ónum króna í verð­bréfa­sjóði í rekstri Glitn­is. Í Kast­ljósi var enn fremur greint frá því að Ólafur Börkur Þor­­valds­­son, sem gegnt hefur emb­ætti hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ara frá árinu 2003, hafi einnig átt hluta­bréf í Glitni um tíma á árinu 2007. Hann seldi bréf sín í lok þess árs og fjár­­­festi í verð­bréfa­­sjóði innan Glitn­­is. Í Frétta­blað­inu í morgun var svo sagt frá því að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Eiríkur Tóm­as­son, Ing­veldur Ein­ars­dóttir og Árni Kol­beins­son, sem nú er hættur störf­um, hafi einnig öll átt hluta­bréf í Glitni á árunum 2007 og 2008. Allir dóm­ar­arnir fimm hafa dæmt í málum sem tengj­ast Glitni, bæði fyrir og eftir hrun. Þar á meðal eru saka­­mál gegn starfs­­mönnum eigna­­stýr­ingar Glitn­­is. Dóm­­ar­­arnir lýstu ekki yfir van­hæfi í neinu þeirra mála. 

Gögnin sem birt voru í gær sýndu sam­skipti Mark­úsar við eigna­stýr­ingu Glitn­is. Á meðal þeirra voru tölvu­póstar og skjöl sem hann und­ir­rit­aði til að veita heim­ild til fjár­fest­ing­ar. Gögnin eru bundin banka­leynd og alls ekki aðgengi­leg mörg­um. Starfs­menn slita­stjórnar Glitnis eftir hrun hafa þó mögu­lega getað flett þeim upp í kerfum bank­ans auk þess sem starfs­menn eigna­stýr­ingar Glitnis fyrir hrun gátu nálg­ast þau. 

Auglýsing

Markús sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem hann seg­ist hafa til­­kynnt nefnd um dóm­­ara­­störf um sölu á hluta­bréfum í sinni eigu þegar við­­skiptin áttu sér stað, og hann hafi fengið leyfi nefnd­­ar­innar þegar honum áskotn­uð­ust þau. Hann hafi hins vegar ekki þurft að til­­kynna um hvernig hann ráð­staf­aði pen­ing­unum eftir söl­una. 

Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, sagði við RÚV í morgun að ljóst sé að upp­lýs­ingum um hluta­bréfa­eign dóm­ara hafi verið komið á fram­færi við fjöl­miðla í þeim til­gangi að hafa áhrif á störf dóm­stóla og hugs­an­lega auka mögu­leika á því að mál verði end­ur­upp­tek­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None