Gunnar Bragi Sveinsson, starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ætlar að láta gera úttekt á ýmsum þáttum í rekstri og starfsumhverfi Matvælastofnunar. Þeir Bjarni Snæbjörn Jónsson stjórnunarráðgjafi og Ólafur Oddgeirsson dýralæknir og framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtæksisins Food Control Consultants Ltd í Skotlandi munu gera úttektina.
Úttektin er gerð eftir uppljóstranir um starfshætti Brúneggja og afskipti Matvælastofnunar af starfseminni þar. Unnið er að endurskoðun laga um Matvælastofnun í ráðuneytinu og gert er ráð fyrir að úttekt á stofnuninni liggi fyrir í lok febrúar og muni verða notuð við endurskoðunina.
Gunnar Bragi segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu að öllum megi vera ljóst að það sé mikilvægt að traust ríki um starfhætti Matvælastofnunar. „Við höfum fengið mjög hæfa einstaklinga til að yfirfara verkferla, lagalegt umhverfi og stjórnsýslu á sviði dýravelferðar og matvælaeftirlits. Með þessu vil ég stuðla að því að við lærum af þeim mistökum sem kunna að hafa verið gerð í einstökum málum og tryggjum að lagaleg umgjörð sé í samræmi við almenna hagsmuni.“
Þeir Bjarni Snæbjörn og Ólafur munu fara yfir verkferla Matvælastofnunar þegar kemur að eftirliti með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit og greina starfsaðferðir og bera saman við það sem almennt gerist hjá sambærilegum stofnunum í Evrópu. Sérfræðingar ráðuneytisins munu yfirfara lög sem gilda um starfsemi Matvælastofnunar og beitingu þeirra og greina hvort skortur á lagaúrræðum hamli því að stofnunin geti veitt almenningi og opinberum stofnunum upplýsingar úr eftirlitsskýrslum.
Þá verður gerð athugun á rekstri, skipulagi og stjórnun og hvernig ráðuneytið sinnir almennum eftirlitsskyldum sínum með starfsemi Matvælastofnunar. Loks er óskað eftir ábendingum um það sem betur má fara varðandi framangreinda þætti, tillögum um breytingar á lögum og öðru því sem telja má að geti eflt framkvæmd með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit.