Búið að ganga frá sölu QuizUp til Bandaríkjanna

rsz_--orsteinn_baldur_2015.jpg
Auglýsing

Plain Vanilla hefur náð sam­komu­lagi við banda­ríska fyr­ir­tækið Glu Mobile um að selja QuizUp leik­inn til þess. Heild­ar­virði samn­ings­ins er um 7,5 millj­ónir dala, um 850 millj­ónir króna, en kaup­verðið er að hluta greitt með upp­gjöri skulda milli fyr­ir­tækj­anna tveggja. 

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að starfs­menn beggja fyr­ir­tækja hafi að und­an­förnu unnið hörðum höndum að yfir­færslu leiks­ins og hefur teymi frá Glu starfað að því verk­efni í höf­uð­stöðvum Plain Vanilla að Lauga­vegi 77. „Í kjöl­far söl­unnar munu Plain Vanilla Corp. í Banda­ríkj­unum og Plain Vanilla á Íslandi hætta rekstri en félögin standa skil á öllum skuld­bind­ingum við starfs­menn sína og lán­ar­drottna.“

Þor­steinn B. Frið­riks­son, stofn­andi og frá­far­andi for­stjóri Plain Vanilla, segir að QuizUp hafi verið ótrú­legt ævin­týri. „Á annað hund­rað Íslend­ingar hafa fengið mik­il­væga reynslu í gegnum störf sín hjá fyr­ir­tæk­inu sem náði ótrú­lega langt í þessum harða iðn­aði. Einnig tókst okkur að búa til einn eft­ir­sóttasta og skemmti­leg­asta vinnu­stað á Íslandi sem lifa mun í minn­ingu allra þeirra sem þar störf­uðu. Ég er mjög þakk­látur öllu starfs­fólki, sam­starfs­að­ilum og fjár­festum sem komið hafa að þessu verk­efni síð­ast­liðin fimm ár. Þó að það sé erfitt að sjá á eftir barn­inu okkar til Banda­ríkj­anna þá erum við um leið spennt fyrir því sem er framund­an. Þá vona ég að Glu Mobile haldi uppi merkjum QuizUp með sóma og ég hef verið full­viss­aður um að það hygg­ist fyr­ir­tækið ger­a.“

Auglýsing

NBC hætti við að fram­leiða spurn­inga­þætti

Þann 31. ágúst síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að Plain Vanilla myndi loka. Öllu starfs­fólki, þá 36 manns, var sagt upp störfum sama dag. 

NBC, sem ætl­­aði að fram­­leiða spurn­inga­þætti undir nafn­inu QuizUp, hafði hætt við fram­­leiðsl­una og rekstr­­ar­­for­­sendur brustu til frek­­ari fjár­­­mögn­unar og þró­unar á fyr­ir­tæk­inu hér á landi. Vonir höfðu staðið til að rekst­­ur­inn yrði sjálf­­bær þegar not­endum fjölg­aði sam­hliða áætl­­aðri frum­­sýn­ingu þátt­­ar­ins. 

Fyr­ir­tæk­inu var svo til­­kynnt um það síðla í ágúst að NBC hefði hætt við þætt­ina. Það kom flestum að óvörum, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, enda hafði fyr­ir­tækið þegar pantað þrettán þætti og búið var að vinna mikla vinnu í sam­­bandi við þá. Búið var að ákveða frum­­sýn­ing­­ar­dag og finna þætt­inum stað í dag­­skrá stjón­varps­­stöðv­­­ar­inn­­ar, klukkan 19 á sunn­u­­dags­­kvöldum frá og með 5. mars næst­kom­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None